Sport

Gunnar Nelson: Samband mitt við Conor McGregor bara líkamlegt

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Gunnar Nelson er þessa dagana staddur í Stokkhólmi þar sem hann kynnir Fight Night bardagakvöld UFC sem fram fer 4. október. Gunnar berst í aðalbardaga kvöldsins og verður stjarna þess.

„Við á Íslandi horfum til Svíþjóðar þegar kemur að mörgum hlutum tengdum blönduðum bardagalistum (MMA). Þið lögleidduð MMA ekki fyrir margt löngu, en það er enn ólöglegt á Íslandi,“ sagði Gunnar á blaðamannafundi í dag.

„Faðir minn og samstarfsmenn mínir hafa fylgst með því hvernig MMA vex í Svíþjóð og reynt að gera svipaða hluti því ykkur gengur mjög vel hérna.“

„Það er því mikill heiður fyrir mig að berjast í aðalbardaganum hérna. Ég hef komið hingað margsinnis áður, t.a.m. þegar ég æfði karate. Ég hef alltaf elskað að koma hingað og því er þetta risastórt fyrir mig.“

Gunnari er spáð sigri af veðbönkum, en það er eitthvað sem honum er alveg sama um.

„Þetta er eitthvað sem ég einblíni ekki á. Ég veit hverjar líkurnar eru þegar ég stíg inn í búrið. Mér finnst líkurnar hvort sem er alltaf mér í hag. Það er auðvitað ástæða fyrir því að þetta er sett upp, en þetta skiptir mig engu máli,“ sagði hann.

Eins og alltaf var hann spurður út í samband sinn við írska bardagakappann ConorMcGregor sem er að sigra UFC-heiminn þessa dagana.

„Það virðast allir hafa mikinn áhuga á sambandi mínu við Conor. Það er bara líkamlegt,“ grínaðist Gunnar og uppskar hlátur úr salnum. „Við höfum æft saman í um sex ár,“ bætti hann við.

Haraldur Dean Nelson, faðir Gunnars, er jafnframt umboðsmaður hans. Gunnar var spurður hvort það væri þægilegt.

„Sumir halda því fram að það sé ekki gott að vera með föður sinn í sínu liði. Ég skil það alveg, en þetta virkar fyrir okkur. Fólk talar um það þegar er í kringum okkur að við líkjumst frekar bestu vinum heldur en feðgum. Stundum er þetta erfitt, en við komumst alltaf í gegnum allt og ég myndi ekki vilja hafa þetta öðruvísi,“ sagði Gunnar Nelson.

 

Allan blaðamannafundinn má sjá í myndbandinu hér að ofan.

MMA

Tengdar fréttir

Gylfi skorar á Gunnar Nelson

Knattspyrnukappinn Gylfi Sigurðsson skorar á bardagakappann Gunnar Nelson í ísfötuáskoruninni sem fer nú sem eldur í sinu um heimsbyggðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×