Lífið

Gunnar Nelson í Las Vegas: Þátturinn sem allir hafa beðið eftir

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þetta verður svakalegur þáttur.
Þetta verður svakalegur þáttur. vísir
Á sunnudagskvöldið verður sérstakur þáttur um bardagakappann Gunnar Nelson á Stöð 2.

Fjölmiðlamaðurinn Auðunn Blöndal fylgdi Gunnari til Las Vegas í júlí þar sem Gunnar pakkaði saman Bandaríkjamanninum Brandon Thatch í eftirminnilegum bardaga.

Þátturinn hefst klukkan 19:40 en þessi þáttur var framleiddur af Stórveldinu. Atvinnumennirnir okkar 2 hefur síðan göngu sína þann 13. desember en Auðunn hefur einnig umsjón með þeim þáttum.

Stórveldið sér einnig um framleiðsluna á þeim þáttum og Samúel Bjarki Pétursson og Gunnar Páll Ólafsson leikstýra þeim.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×