Lífið

Gunnar Nelson farinn aftur til Las Vegas: Aðstoðar McGregor í The Ultimate Fighter

Stefán Árni Pálsson skrifar
Gunnar og McGregor eru miklir vinir.
Gunnar og McGregor eru miklir vinir. vísir/tvitter/getty
Gunnar Nelson er á leið til Las Vegas þar sem hann mun aðstoða Conor McGregor við þjálfun á nýjustu seríu The Ultimate Fighter. Þetta kemur fram í frétt á vef MMA á Íslandi.

Conor McGregor og Urijah Faber verða þjálfarnir í nýrri seríu sem verður frumsýnd á FOX 9. september.

Okkar maður flaug út í morgun og verður með McGregor næstu tvær vikurnar. Hann mun koma til með að aðstoða McGregor sem þjálfar lið Evrópumanna. Bandaríkjamaðurinn Urijah Faber þjálfar lið Bandaríkjanna.

Í þættinum berjast evrópskir og bandarískir bardagamenn gegn hvor öðrum. 

MMA

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×