Sport

Gunnar Nelson: Það á að lyfjaprófa menn allt árið | Myndband

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Gunnar er hér vigtaður fyrir sinn síðasta bardaga.
Gunnar er hér vigtaður fyrir sinn síðasta bardaga. vísir/getty
Það er mikið rætt um lyfjapróf í UFC-heiminum í dag eftir að leifar af kókaíni mældust í Jon Jones fyrir bardagann gegn Daniel Cormier.

Svo hefur Svíinn Alexander Gustafsson óskað eftir því að fleiri lyfjapróf verði gerð í íþróttinni. Hann þarf sjálfur að fara í lyfjapróf fyrir bardaga sinn 24. janúar en andstæðingur hans, Anthony Johnson, þarf þess ekki. Við það er Gustafsson frekar ósáttur.

Sjá einnig: Jon Jones féll á lyfjaprófi

Vísir ræddi þessi mál við okkar besta bardagamann, Gunnar Nelson.

„Ég veit voða lítið um þetta Jones-mál annað en að það fannst í honum eitthvað efni sem er í kókaíni. UFC fellur undir allar reglugerðir hjá lyfjayfirvöldum í Bandaríkjunum," segir Gunnar.

Okkar maður er í sama báti og Gustafsson með að það þurfi að fjölga lyfjaprófum í íþróttinni.

„Ég held að það sé mjög gott að menn séu kallaðir í lyfjapróf alveg villt og galið. Ég skil vil að Gustafsson vilji að Anthony Johnson verði lyfjaprófaður. Manni finnst að hann sé líklegur til þess að vera að setja eitthvað í sig. En maður veit það ekki," segir Gunnar en hann vill að menn geti átt von á því að fara í lyfjapróf hvenær sem er.

„Ég er mjög hlynntur því að menn séu prófaðir allan ársins hring. Ekki bara rétt fyrir keppni heldur líka meðan á æfingum stendur. Menn eru með alls konar leiðir til þess að komast í gegnum þessi lyfjapróf.

Sjá einnig: Vill fleiri lyfjapróf í UFC

„Sérstaklega ef þeir vita nákvæmlega hvenær prófið fer fram. Ég vona að það verði fleiri og betri próf. Blóðprufur og menn geri þetta að alvöru. Þó svo það sé dýrt þá held ég að það skili sér."

Viðtalið við Gunnar í heild sinni má sjá hér að neðan.

MMA

Tengdar fréttir

Vill fleiri lyfjapróf í UFC

Sænski bardagakappinn Alexander Gustafsson vill sjá UFC beita sér fyrir því að fleiri í íþróttinni þurfi að gangast undir lyfjapróf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×