Íslenski boltinn

Gunnar Jarl besti dómarinn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
vísir/anton
Gunnar Jarl Jónsson var í dag valinn besti dómari Pepsi-deildar karla af leikmönnum deildarinnar. Það var tilkynnt fyrir leik KR og Fylkis í dag, þar sem hann er aðaldómari leiksins.

Gunnar Jarl var einnig valinn besti dómari tímabilsins í fyrra en hann er alþjóðlegur dómari sem hefur dæmt í efstu deild um árabil.

Lokaumferð Pepsi-deildar karla fer öll fram í dag og er fylgst með gangi mála í fréttinni hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×