Íslenski boltinn

Gunnar Heiðar spilandi aðstoðarþjálfari hjá ÍBV í sumar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gunnar Heiðar Þorvaldsson.
Gunnar Heiðar Þorvaldsson. Vísir/Vilhelm
Eyjamenn hafa gert nýjan samning við tvo öfluga leikmenn eða þá Gunnar Heiðar Þorvaldsson og Jón Ingason.

Eyjamenn segja í fréttatilkynningu að „tveir efnilegir Eyjapeyjar“ hafi skrifað undir samning við ÍBV en það er þó þrettán ára aldursmunur á þeim félögum.

Gunnar Heiðar, sem verður 35 ára á þessu ári, gerir tveggja ára samning en hann verður nú spilandi aðstoðarþjálfari Eyjaliðsins.

Jón Ingason, sem er fæddur árið 1995, gerir samning út næsta tímabil en það leit út fyrir það síðasta haust að hann væri á förum frá félaginu.

Gunnar Heiðar er sjötti markahæsti leikmaður ÍBV í efstu deild með 42 mörk í 92 leikjum en hann skoraði 1 mark í 9 leikjum á síðasta tímabili þar sem hann missti mikið úr vegna meiðsla.  

Jón Ingason er búinn að spila 72 leiki fyrir ÍBV í efstu deild þrátt fyrir að halda ekki upp á 22 ára afmælið sitt fyrr en næsta haust.  „Jón Ingason, sem er vel kunnugur okkur Eyjamönnum en hann hefur spilað með ÍBV frá unga aldri en leiðir skildu s.l haust. Jón gerði samning við félagið út komandi tímabil og er mikil ánægja með að fá Jón aftur heim,“ segir í fréttatilkynningunni.

„Mér líst mjög vel á þetta og vil bara byrja á því að þakka knattspyrnudeild ÍBV og Kristjáni fyrir traustið. Ég hef aðeins verið að pæla í því hvort maður ætti að fara út í þjálfun síðustu árin og eftir að stjórnin og Kristján höfðu samband við mig og kynntu fyrir mér þennan möguleika þá kom ekkert annað til greina en að stökkva á tækifærið,“ segir Gunnar Heiðar Þorvaldsson í fréttatilkynningunni.

„Ég hef verið með marga þjálfara á ferlinum, misgóða, en ég mun klárlega reyna taka það besta úr þeim þjálfurum sem ég átti samleið með inn í þetta starf. Ég er bara gríðarlega spenntur fyrir þessu verkefni og hlakka til að hjálpa leikmönnum ÍBV að verða betri leikmenn og við verðum betra lið, þannig að við getum farið að horfa aðeins upp úr þessari botnbaráttu við höfum verið í síðustu ár,“ sagði Gunnar Heiðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×