Fótbolti

Gunnar Heiðar skoraði í sex marka leik

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
vísir/getty
Gunnar Heiðar Þorvaldssson skoraði eitt marka Häcken sem gerði 3-3 jafntefli við topplið Malmö í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Leikurinn sem leikinn var á heimavelli Häcken fór æsilega af stað. Heimamenn komust yfir strax á 5. mínútu og sex mínútum síðar var staðan orðin 1-1.

Gunnar Heiðar kom Häcken yfir á ný á 18. mínútu og tíu mínútum síðar var liðið komið í 3-1 en þannig stóð í hálfleik.

Þegar ellefu mínútur voru liðnar af seinni hálfleik var Malmö búið að jafna en þremur mínútum síðar var Gunnar Heiðar tekinn af leikvelli.

Häcken er með 37 stig í 5. sæti deildarinnar en Malmö er á toppnum sem fyrr en liðið er með fimm stiga forystu á AIK sem á þó leik til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×