Íslenski boltinn

Gunnar Heiðar: Enginn þarf að hafa áhyggjur núna

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Gunnar Heiðar fór til Norrköping eftir að hann samdi við ÍBV.
Gunnar Heiðar fór til Norrköping eftir að hann samdi við ÍBV. mynd/norrköping
„Það er bara kominn tími á þetta,“ segir Gunnar Heiðar Þorvaldsson, knattspyrnumaðurinn úr Eyjum, sem hefur ákveðið að snúa aftur heim, en hann er búinn að semja við ÍBV og hefur leik með uppeldisfélagi sínu þegar félagaskiptaglugginn opnar 15. júlí.

„Ég er búinn að vera úti í ellefu ár og prófa allt og sjá allt og gera allt,“ segir hann í samtali við Vísi.

Gunnar Heiðar kemur til ÍBV frá Häcken í sænsku úrvalsdeildinni þar sem hann hefur spilað undanfarið eitt og hálft ár.

„Við ætluðum alltaf að flytjast heim. Fjölskyldan er nú þegar flutt og hefur verið heima á Íslandi í eitt og hálft ár. Það hefur því verið svolítið erfitt að vera einn úti, sérstaklega með nýtt barn á leiðinni. Þetta var því auðveld ákvörðun,“ segir Gunnar Heiðar.

Verður góð saga á Þjóðhátíð

Gunnar Heiðar samdi við Eyjamenn fyrir tímabilið 2011 en spilaði aldrei leik. Hann fór utan til Norrköping í Svíþjóð áður en tímabilið hófst.

Eyjamenn hafa því grínast með það í dag, að þeir fagni ekki fyrr en Gunnar mætir í hvítu treyjunni út á völlinn.

„Ég held að fólk þurfi ekki að hafa neinar áhyggjur af því núna,“ segir hann og skellihlær.

„Síðast var einn maður, frændi minn Heimir Hallgrímsson, sem vildi ólmur fá mig. Hann lagði mikla áherslu á að ganga frá undirskriftinni sem fyrst til að sýna að ÍBV ætlaði sér stóra hluti.“

„Ég bað um að bíða með þetta fram í febrúar því það gæti verið lið sem kæmu á eftir mér í glugganum og svo gerðist það viku síðar að Norrköping vildi fá mig. Þetta er góð saga sem verður mikið hlegið að á Þjóðhátíðum næstu árin,“ segir Gunnar Heiðar.

Gunnar Heiðar hefur engar áhyggjur af stöðu ÍBV í deildinni, en það er í næst neðsta sæti þegar mótið er einum leik frá því að vera hálfnað.

„ÍBV er komið í undanúrslit bikarsins þannig það gæti vel verið að við vinnum bikar í ár þó þetta líti ekki vel út í deildinni,“ segir Gunnar Heiðar Þorvaldsson.

Nánar verður rætt við Gunnar Heiðar í Fréttablaðinu á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×