Íslenski boltinn

Gunnar: Spennustigið er lægra en í fyrra

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Gunnar Rafn er að stýra liði í bikarúrslitum í fjórða sinn á síðustu fimm árum.
Gunnar Rafn er að stýra liði í bikarúrslitum í fjórða sinn á síðustu fimm árum. vísir/anton
Selfoss og Stjarnan mætast í bikarúrslitum í dag. Þetta er annað árið í röð sem þessi lið leiða saman hesta sína í bikarúrslitum en Stjarnan vann leik liðanna í fyrra með fjórum mörkum gegn engu.

Gunnar Rafn Borgþórsson, þjálfari Selfoss, er ekki viss hvort hann  eigi von á jafnari leik í ár.

„Ég veit það ekki. Leikurinn í fyrra var mjög jafn þangað til undir lokin og leikirnir okkar gegn Stjörnunni hafa verið gríðarlega jafnir. Í ár erum við búnar að vinna þær tvisvar og þær okkur tvisvar. Ég býst við jöfnum leik á laugardaginn,“ sagði Gunnar í samtali við Vísi fyrir bikarúrslitaleikinn.

Hann segir að Selfyssingar mæti tilbúnari til leiks í ár en í fyrra.

„Við erum reynslunni ríkari og spennustigið er lægra hjá hópnum. Liðið er sterkara frá því í fyrra. Á móti kemur að deildin og öll liðin í henni og þessari keppni eru sterkari. Og vonandi sjáum við betri fótbolta á laugardaginn. Ég býst við hröðum leik,“ sagði Gunnar.

Liðin unnu sitt hvorn leikinn í Pepsi-deildinni en hvað var það sem gekk vel hjá Selfossi í sigurleiknum í deildinni?

„Það sem hefur verið að virka fyrir Selfossliðið er gríðarleg vinnusemi og mikil barátta, einfalt upplegg og einhugur í hópnum. Þetta þarf að vera í lagi ef við ætlum að vinna leikinn.

„Við þurfum að vilja vinna og klára okkur inni á vellinum,“ sagði Gunnar sem stýrði Val til sigurs í bikarkeppninni fyrir fjórum árum. Hann hefur verið fastagestur í bikarúrslitaleikjum undanfarin ár en þetta er í fjórða sinn á síðustu fimm árum sem hann stýrir liði í þessum stærsta leik hvers sumars.

Stjarnan teflir fram gríðarlega sterku liði sem styrktist enn frekar í félagaskiptaglugganum þegar Garðabæjarliðið fékk til sín fjóra erlenda leikmenn. Tvær þeirra eru brasilískar landsliðskonur sem hafa komið sterkar inn í lið Stjörnunnar.

„Nei, ekki þeim sérstaklega,“ svaraði Gunnar aðspurður hvort hann væri með einhver sérstök ráð til að stoppa Brassana tvo í liði Stjörnunnar.

„Við reynum að leggja leikinn vel upp og undirbúa okkur vel. Hver einasti leikmaður í Stjörnuliðinu, hvort sem hann spilar eða ekki, er gríðarlega sterkur. En það er líka þannig hjá okkur,“ sagði Gunnar sem segir að Selfossliðið sé ákveðið að vinna sinn fyrsta bikarmeistaratitil og jafnframt fyrsta stóra titilinn í sögu félagsins.

„Við viljum og ætlum að vinna. En við finnum ekki fyrir neinni pressu frá bæjarfélaginu eða félaginu. Þetta er náttúrulega gríðarlega stór áfangi fyrir lið sem hefur bara verið fjögur ár í efstu deild að komast annað árið í röð í bikarúrslit.“

Leikur Selfoss og Stjörnunnar hefst klukkan 16:00 og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Einnig verður hægt að fylgjast með leiknum í beinni textalýsingu á Vísi.


Tengdar fréttir

Ásgerður: Hungrið er vonandi enn meira

Ásgerður Stefanía Baldursdóttir leiðir Stjörnuna út á Laugardalsvöllinn í dag þegar Garðbæingar mæta Selfossi í úrslitaleik Borgunarbikarsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×