Sport

Gunnar: Menn geta rifið kjaft eins og þeir vilja

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Gunnar Nelson í Stokkhólmi.
Gunnar Nelson í Stokkhólmi. vísir/getty
Gunnar Nelson berst í aðalbardaga kvöldsins á UFC Fight Night í Stokkhólmi 4. október, en hann er við æfingar í Dyflinni á Írlandi þessa dagana í æfingasal þjálfara síns, JohnKavanagh.

Myndband af viðtalinu má sjá neðst í fréttinni.

Hann veitti bardagasíðunni Severe MMA viðtal í búrinu í SBG-æfingasalnum og var fyrst spurður út í hvort hann hefði virkilega sýnt smá tilfinningar eftir sigurinn á ZakCummings í Dyflinni í júlí, en Gunnar er ekki þekktur fyrir að vera mjög æstur maður.

„Já, það gæti vel verið, ég veit það ekki alveg samt. Eina sem ég veit, er að fólkið í salnum var alveg magnað. Þetta var eitthvað sem ég hef ekki fundið fyrir áður. Kannski missti ég mig aðeins,“ segir Gunnar.

Gunnar hefur verið öflugur á Twitter undanfarna mánuði og notað þann samfélagsmiðil mun meira. Hann viðurkennir að faðir hans, Haraldur Nelson, kemur að Twitter-síðunni, en sjálfur er hann byrjaður á öðrum samfélagsmiðli.

„Pabbi hjálpar mér á Twitter, en ég var að byrja á Instagram og sé um það sjálfur. Ég hef meira gaman að Instagram. Það eru bara myndir og smá texti,“ segir hann, en Gunnar ætlaði að taka sér smá frí áður en boðið um bardagann í Stokkhólmi barst.

„Ég ætlaði að taka mér frí en þá bauðst mér þetta tækifæri og ég stökk á það. Ég, kærastan og fjölskyldan vorum sammála um að ég myndi berjast núna og fá svo smá frí fram á næsta ár.“

vísir/getty
Það er ekki óalgengt fyrir bardaga í UFC að menn keppist við að hrauna yfir hvorn annan í viðtölum, en Gunnar hefur aldrei stundað það. Hann var spurður hvort ekki mætti búast við að menn færu að senda honum tóninn til að reyna að koma honum meira úr jafnvægi.

„Það gæti vel verið. Það hefur alveg verið í gangi í fortíðinni. Það hefur samt engin áhrif á mig. Menn geta sagt það sem þeir vilja, en þegar allt kemur til alls er þetta bara kjaftæði. Menn verða alltaf að stíga inn í búrið og gera það sem þeir þurfa að gera,“ segir Gunnar sem er farin að láta sig dreyma um UFC-bardagakvöld á Íslandi.

„Ef UFC kemur til Íslands verð ég stór hluti af því. Það er engin spurning. Eins og staðan er þá eigum við enga staði til að berjast á í UFC, en ég ætla að fara að skoða þetta betur.“

„Eins og ég sé þetta þá er Ísland staður þar sem Bandaríkin getur mætt Evrópu. Þetta er mitt á milli. Þetta er styttra flug fyrir báða aðila,“ segir Gunnar Nelson.

MMA

Tengdar fréttir

Gunnar Nelson tók ísfötuáskorun Gylfa Sigurðssonar

Knattspyrnumaðurinn Gylfi Sigurðsson hjá Swansea í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta skoraði á UFC bardagamanninn Gunnar Nelson að láta hella yfir sig fullri fötu af ísvatni og styrkja um leið rannsóknir á MND.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×