Sport

Gunnar: Ég ætlaði nú að taka mér frí

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Gunnar Nelson berst í aðalbardaga kvöldsins í Stokkhólmi.
Gunnar Nelson berst í aðalbardaga kvöldsins í Stokkhólmi. vísir/getty
„Þetta er bara draumur - það er frábært að vera í aðalbardaganum hjá nágrönnum okkar í Svíþjóð,“ segir Gunnar Nelson, en eins og Vísir greindi frá berst hann í aðalbardagakvöldsins á bardagakvöldi í Stokkhólmi í byrjun október.

„Þetta var bara ákveðið í dag. Viðræður hófust í vikunni, en við samþykktum þetta í dag,“ segir Gunnar við Vísi, en hann hafði ætlað að taka sér frí eftir sigurinn á Zak Cummings á dögunum.

„Ég fæ bara að heyra það frá UFC að það vill að ég fari fyrir þessu kvöldi. Ég ætlaði nú að taka mér frí, en hugsaði að ég gæti tekið þennan bardaga og farið svo í frí. Ég ætlaði aðeins að vera með fjölskyldunni,“ segir Gunnar sem er nýbakaður faðir.

„En það er töluvert stutt í þetta þannig ég get afgreitt þennan bardaga og tekið mér svo frí. Það er líka flott að fá þennan bardaga svona stutt eftir hinn. Það er enn hiti eftir hann.“

Áhuginn á blönduðum bardagalistum er gríðarlegur í Svíþjóð, ekki síst vegna léttþungavigtar kappans AlexandersGustafson, sem er einn sá besti í heimi.

Gunnar er eðlilega mjög spenntur fyrir kvöldinu og ánægður með það hvernig hann er að færast ofar í sportinu.

„Svona gengur þetta. Síðan eftir þennan bardaga verða ekkert nema aðalbardagar eftir það. Bara „headline fights“,“ segir hann léttur og kátur.

Rick Story, mótherji hans, er aðeins annar af tveimur mönnum sem unnið hefur núverandi meistara, JohnnyHendricks.

„Þetta er helvíti góður og reyndur kappi. Hann er búinn að berjast við alla þessa bestu og bæði unnið og tapað. Hann er góður glímumaður og mjög höggþungur. Þetta verður hörku bardagi,“ segir Gunnar sem segist þó sigurviss að vanda.

Einn besti vinur Gunnars, írska ofurstjarnan ConorMcGregor, berst næst í Las Vegas, en Gunnar æfir með honum fyrir alla bardaga. Á því verður engin breyting.

„Ég fer sennilega til Vegas, æfi með Conor og flýg beint þaðan til Svíþjóðar. Við höfum æft saman í sex til sjö ár núna,“ segir Gunnar Nelson.

MMA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×