Sport

Gunnar: Conor klárar Diaz í annarri lotu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Gunnar Nelson ætlar að fylgjast með vini sínum, Conor McGregor, í sófanum heima hjá sér í nótt. Þá berst Conor við Nate Diaz í Las Vegas.

„Ég ákvað að koma bara heim og vera heima með fjölskyldunni áður en ég fer sjálfur út að æfa,“ segir Gunnar aðspurður um hvort það hafi ekki verið freistandi að fara út með Conor og njóta lífsins í Vegas í stað þess að undirbúa sig fyrir bardaga.

Nate Diaz hljóp í skarðið er léttvigtarmeistarinn Rafael dos Anjos meiddist. Það gerði hann með ellefu daga fyrirvara.

„Þetta verður helvíti skemmtilegur bardagi. Ég er eiginlega spenntari fyrir þessum bardaga en Dos Anjos-bardaganum. Það eru tvær ástæður fyrir því. Í fyrsta lagi hvernig Diaz berst. Hann er líka lengri og stærri en Conor. Það verður áhugavert að horfa á það. Ég held samt að Conor sé miklu betri. Diaz er samt algjör hundur.“

Conor fór upp um tvo þyngdarflokka til þess að berjast gegn Diaz. Bardaginn fer fram í þyngdarflokki Gunnars, veltivigtinni.

„Þeir eru að berjast í þeirri þyngd sem þeir labba um dags daglega. Conor er líklega svona 79 kíló dagsdaglega,“ segir Gunnar en í veltivigt er bardagakapparnir 77 kíló.

„Mér finnst það vera til fyrirmyndar og gera þetta áhugaverðara. Menn ættu að vera ferskari.“

Bæði Conor og Diaz eru miklir strigakjaftar og munu láta hvorn annan heyra það í búrinu.

„Það verður talað í búrinu. Ég get lofað þér því. Dos Anjos er betri bardagamaður en Diaz en þessir tveir stílar eru meira spennandi. Diaz-bræðurnir eru karakterar og ég hef gaman af Nate. Menn blaðra bara eitthvað út í bláinn. Það er enginn að finna upp hjólið í þessu. Menn eru bara að æfa sig.“

Conor er búinn að spá því að hann roti Diaz í fyrstu lotu. Gunna er ekki alveg sannfærður um það.

„Ég held að Conor klári þetta í annarri lotu. Ef hann klárar þetta í fyrstu lotu þá gerir hann það seint í lotunni. Ég held það verði hreyfing og að Conor muni veðra hann niður. Setji hann upp. Ég held að það taki alveg lotu. Ég held að þetta verði mjög skemmtilegt.“

MMA

Tengdar fréttir

Conor lofar enn einu rothögginu

Conor McGregor stígur inn í búrið í Las Vegas í nótt. Hann er búinn að vinna fimmtán bardaga í röð og ætlar sér að rota Nate Diaz í fyrstu lotu. Conor hefur rotað andstæðinga sína 17 sinnum í 19 sigrum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×