Sport

Gunnar: Conor á möguleika gegn Mayweather

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Gunnar Nelson hefur trú á því að Conor McGregor gæti staðið upp í hárinu á Floyd Mayweather ef þeir myndi mætast í hnefaleikabardaga eins og stefnt er að þessa dagana.

Conor sagði sjálfur á dögunum að næsti bardagi hans yrði ekki í UFC-búrinu heldur í hnefaleikahringnum.

„Þegar kemur að bardaganum sjálfum á ég svolítið erfitt með að gera mér grein fyrir hvernig þetta verði. Mayweather er auðvitað einn besti boxari allra tíma,“ segir Gunnar en bendir á að það sé ýmislegt sem vinni með vini hans frá Írlandi.

„Conor er auðvitað mjög góður boxari. Hann er líka stærri en Mayweather og er örvhentur. Mayweather hefur gengið verst á móti örvhentum boxurum. Þeir sem Mayweather hefur barist við eru allir minni en Mayweather. Conor er aftur á móti með hæðina og faðmlengdina á hann. Ég stend með mínum manni.“

Það er aldrei í myndinni að þeir mætist í MMA-bardaga en Gunnar er með ágætis hugmynd að millileik til þess að jafna bardagann þar sem Conor er með takmarkaða hnefaleikareynslu en hann boxaði áður en hann fór í MMA.

„Ég væri til í að sjá þennan bardaga þannig að þeir væru með litla hanska. Myndu boxa með litla hanska. Það er svolítið öðruvísi og þá er Conor kominn aðeins á sinn heimavöll en samt er Mayweather að fá bara að boxa. Það væri glórulaust ef þetta væri eitthvað annað en box. Ef það væru spörk þá væri þetta barnaleikur fyrir Conor.“

Viðtalið við Gunnar má sjá hér að ofan.

MMA

Tengdar fréttir

Mayweather segist eiga von á því að berjast við Conor

Hnefaleikakappinn Floyd Mayweather segist eiga von á því að hann muni berjast við írska vélbyssukjaftinn Conor McGregor en báðir voru þeir spurðir út í möguleikann á þessum ótrúlega bardaga um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×