Sport

Gunnar: Conor á að geta pakkað Diaz saman

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Conor bíður eftir tækifærinu að komast aftur í Diaz.
Conor bíður eftir tækifærinu að komast aftur í Diaz. vísir/getty
Conor McGregor bíður enn eftir tækifæri til þess að hefna gegn Nate Diaz og Gunnar Nelson hefur fulla trú á því að Conor muni afgreiða Diaz með stæl er tækifærið kemur.

Gunnar segir við Fox Sports að Conor hafi gert ákveðin mistök í bardaganum gegn Diaz fyrr á árinu. Mistök sem sé einfalt að laga.

„Hann gerði ákveðinn tæknileg mistök sem urðu þess valdandi að hann tapaði bardaganum. Ef þið horfið á fyrstu lotuna og byrjunina á annarri þá er Conor að pakka Diaz saman,“ sagði Gunnar.

„Hann var samt að klikka á mörgum höggum. Hann var að kýla miklu oftar en hann þurfti. Hann var að drífa sig of mikið. Ef hann tekur sinn tíma í að brjóta hann niður, notar hraðann frekar en kraftinn þá held ég að hann muni pakka Diaz saman.“

Ekki er enn búið að staðfesta bardaga Conor og Diaz í sumar. Það átti að vera aðalbardaginn á UFC 200 í júlí en þar sem Conor vildi ekki auglýsa kvöldið var honum hent út.

Talað er um að bardaginn verði á UFC 201 eða 202 en það yrði þá seint í júlí eða ágúst.

MMA

Tengdar fréttir

Gunnar: Þetta var stórsigur fyrir mig

"Mér líður alveg ljómandi vel. Það er eiginlega ekki annað hægt. Þetta gekk glimrandi vel,“ segir Gunnar Nelson en hann var þá nýbúinn að vinna Rússann Albert Tumenov í UFC-bardaga í Rotterdam.

Gunnar Nelson tileinkaði móður sinni sigurinn

"Ég ætla fá að nota tækifærið og tileinka þennan sigur móður minni, því það er jú mæðradagurinn,“ sagði Gunnar Nelson í viðtali inni í hringnum eftir að hann hafði unnið yfirburðasigur á Rússanum Albert Tumenov í Rotterdam í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×