Sport

Gunnar: Bardagi milli mín og Cerrone yrði frábær

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Gunnar Nelson.
Gunnar Nelson. vísir/getty
Það er farið að styttast í að Gunnar Nelson stígi aftur í búrið í UFC og hugsanlega verður næsti bardagi hans staðfestur í næstu viku.

Gunnar barðist síðast við Rússann Albert Tumenov í maí á síðasta ári. Hann átti svo að berjast við Kóreubúann Dong Hyung Kim í Belfast í nóvember en okkar maður gat ekki barist vegna ökklameiðsla.

Ökklinn er nú orðinn góður og Gunnar bíður eftir jákvæðum fréttum frá UFC.

„Við höfum verið að fá svör frá UFC en staðsetning og andstæðingur liggur ekki fyrir. Vonandi fáum við betri svör í næstu viku. Ég hef verið að reyna að komast inn á bardagakvöldið í London 18. mars. Það var orðið fullt þar en svo höfðu þeir samband og sögðu að mögulega væri hægt að vinna eitthvað með þetta,“ segir Gunnar en allir voru búnir að afskrifa London á dögunum en UFC hefur opnað glugga.

„Ég vil nú ekki gera mér of miklar vonir. Mig langaði að komast á þetta bardagakvöld og frábært fyrir alla hérna heima að geta hoppað yfir. Það er ekki alveg úr myndinni en ég myndi ekki panta miða alveg strax.“

Nú er það spurning við hvern Gunnar berst. Það hefur verið rætt um að taka upp þráðinn á ný með Kóreubúanum.

„Ef að hann er klár þá væri það helvíti sniðugt. Það hefur alveg verið rætt að ég fengi hann. Ef það gengur ekki vil ég einhvern sem er þarna í kringum mig á styrkleikalistanum,“ segir Gunnar en hann væri til að mynda mjög spenntur fyrir því að keppa við hinn skrautlega Donald „Cowboy“ Cerrone.

„Það væri frábær bardagi. Hann er stórt nafn í Ameríku og ég myndi taka við honum opnum örmum.“

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×