Enski boltinn

Gundogan byrjaður að spila á ný

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Gundogan í leiknum í gær.
Gundogan í leiknum í gær. vísir/getty
Miðjumaður Man. City, Ilkay Gundogan, spilaði í gær sinn fyrsta knattspyrnuleik í átta mánuði.

Þá var hann í liði City sem tapaði gegn Girona, 1-0, í æfingaleik. Gundogan kom af bekknum og spilaði síðustu 20 mínútur leiksins.

Gundogan kom til City fyrir rúmu ári síðan en sleit allt í hnénu í desember. Það var í þriðja sinn sem hann meiðist alvarlega á fjórum árum.

Það styttist því í að við sjáum hann aftur í alvöru leik. Benjamin Mendy er einnig á fínum batavegi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×