Lífið

Gummi ekki sár yfir Eddunni: Tók víkingaklappið með Robbie Williams í spjallþætti

Stefán Árni Pálsson skrifar
Robbie Williams og Gummi saman í spjallþætti.
Robbie Williams og Gummi saman í spjallþætti.
Brennslubræður voru brjálaðir yfir því að Gummi Ben var sniðgenginn sem sjónvarpsmaður ársins á Eddunni en tilnefningarnar voru kunngjörðar í anddyri Bíó Paradísar í gær. Þeir Kjartan og Hjörvar heyrðu hljóðið í Guðmundi á FM957 í morgun og spurðu hann út í málið.

Eins og alþjóð veit var árið 2016 heldur viðburðarríkt hjá Gumma Ben. Hann sló rækilega í gegn sem lánsmaður íþróttadeildar 365 í Sjónvarpi Símans á EM í Frakklandi og varð fyrir vikið heimsfrægur. Hann hefur farið á kostum í Ísskápastríðinu á Stöð 2 að undanförnu og einnig staðið sig frábærlega hjá Stöð 2 Sport, bæði við lýsingar og einnig er hann umsjónarmaður Messunnar. 

„Ég er ekkert sérstaklega sár, satt best að segja,“ sagði Gummi í þættinum í morgun.

Nýja verðlaunagripinn sem barist er um á Eddunni má sjá að neðan. 

„Ég hef verið margverðlaunaður og er bara mjög ánægður með lífið. Þetta truflar mig ofboðslega lítið. Þetta er kannski bara eins og með nammið hjá börnunum, ef þau hafa ekki smakkað það, þá hefur þetta enginn áhrif.“

Bæði Egill Helgason og Þorsteinn Joð hafa komið fram á Facebook og ritað að það sé skandall að Gummi hafi ekki fengið tilnefningu. Sjálfur segir Gummi að samstarfskona hans Sigrún Ósk Kristjánsdóttir, umsjónarkona Leitarinnar að upprunanum, eigi viðurkenninguna skilið.

„Í fyrsta lagi þá veit ég ekkert hvernig þetta virkar allt saman og hverjir sitja í nefnd og ákveða þetta. Kannski hafa þeir bara engan áhuga á íþróttum og það er lítið við því að segja.“

Egill Helgason er þeirrar skoðunar að Gummi Ben komi einn til greina sem sjónvarpsmaður ársins.
Egill Helgason skrifar á Facebook: 

„Það er mín skoðun að það komi enginn til greina sem sjónvarpsmaður ársins annar en Guðmundur Benediktsson.“

Guðmundur hefur fengið boð í fjölmarga sjónvarpsþætti um allan heim eftir EM-ævintýrið.

„Jú jú. Ég hef fengið nokkur boð,“ segir Gummi sem hefur verið í sjónvarpsþáttum í Japan, Kína, Bretland, Þýskalandi og á fleiri stöðum.

„Sem betur fer hefur þetta aðeins róast, sem er gott. Á vissan hátt hef ég haft gaman af þessu, þetta er bara búið að vera ævintýri. En þetta var aðeins of mikið um tíma.“

Gummi var til að mynda gestur í sjónvarpsþætti í Þýskalandi á dögunum og með honum í þættinum voru þeir Robbie Williams og Toni Kroos, leikmaður Real Madrid. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×