Körfubolti

Gummi Ben lýsti körfuboltaleik án þess að vita af því

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðmundur Benediktsson og LeBron James.
Guðmundur Benediktsson og LeBron James. Vísir/Samsett mynd
Íslenski íþróttafréttamaðurinn Guðmundur Benediktsson varð heimsfrægur síðasta sumar eftir ógleymanlega lýsingu hans á sigurmarki íslenska fótboltalandsliðsins á móti Austurríki á EM í Frakklandi.

Gummi Ben gjörsamlega missti sig þegar Arnór Ingvi Traustason tryggði íslenska liðinu sigur og þar með leik á móti Englandi í sextán liða úrslitunum. Lýsing Gumma Ben fór eins og eldur um sinu um allan veraldavefinn þetta miðvikudagskvöld í júní enda innlifun hans engu öðru lík.

Það var ekki nóg með að heimurinn var búinn að horfa á lýsinguna aftur og aftur þá höfðu einhverjir sniðugir einnig sett saman þungarokkslag með lýsingu Guðmundar undir. Það var þá en lýsing Guðmundar er samt enn að poppa upp á netinu.

Það eru liðnir rúmir þrír mánuðir frá þessum ótrúlegu dögum í júnímánuði en hin stóra sportfréttastofa ESPN hefur nú látið útbúa myndband þar sem þessi eftirminnilega lýsing Gumma Ben kemur fyrir.

Þremur dögum fyrir leik Íslands og Austurríkis í París hafði Cleveland Cavaliers tryggt sér NBA-titilinn í fyrsta skiptið í sögu félagsins.

LeBron James var stórkostlegur í lokaúrslitunum og eitt frægasta atvik úrslitanna var þegar hann birtist allt í einu og varði skot Andre Iguodala í hraðaupphlaupi.

Í stað þess að koma Golden State Warriors yfir (staðan var 89-89) fór Cleveland-liðið í sókn, Kyrie Irving setti niður þrist og James og félagar fögnuðu sigri.

ESPN ákvað að setja saman myndbrot af þessu magnaða varða skoti LeBron James og lýsingu Gumma Ben af sigurmarki Arnórs Ingva Traustasonar. Myndbandið heitir: „LeBron´s epic block as heard in Iceland“

Það má sjá útkomuna hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×