Tónlist

Gullplatan kom skemmtilega á óvart

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Hljómsveitin Kaleo hefur selt yfir fimm þúsund eintök af plötunni sinni og fékk því afhenta gullplötu á dögunum.
Hljómsveitin Kaleo hefur selt yfir fimm þúsund eintök af plötunni sinni og fékk því afhenta gullplötu á dögunum. vísir/arnþór
„Þetta kemur mikið á óvart og við erum í skýjunum með viðtökurnar,“ segir Jökull Júlíusson, söngvari og gítarleikari hljómsveitarinnar Kaleo, en sveitin fékk fyrir skömmu afhenta gullplötu fyrir sína fyrstu plötu sem er samnefnd hljómsveitinni.

Platan kom út í lok nóvember og fékk frábærar viðtökur. „Þetta er sérstaklega mikil viðurkenning þar sem plötusala hefur dregist mikið saman. Íslendingar eru þó duglegir að styðja unga íslenska tónlistarmenn,“ bætir Jökull við.

Sveitin er farin að vinna að nýju efni og stefna þeir félagar á að senda frá sér nýtt lag á næstunni.

Kaleo hefur verið mikið á ferðinni að undanförnu og nóg að gera fram undan. „Það hefur verið gífurlega mikið að gera síðan fyrir jól. Við höfum spilað á mörgum skemmtilegum viðburðum úti á landi. Við fórum í tónleikaferðalag til Danmerkur, Lettlands og Eistlands og fólkið tók mjög vel á móti okkur. Við komum einnig fram í ríkisútvarpinu og ríkissjónvarpinu í Eistlandi,“ útskýrir Jökull.

Kaleo er á leið til Færeyja þar sem sveitin kemur fram á G-Festival um næstu helgi. „Þetta verða okkar fyrstu tónleikar í Færeyjum og við höfum heyrt ýmislegt gott um hátíðina.“

Þeim félögum var boðið að spila á Íslendingahátíð í Kanada um verslunarmannahelgina en völdu frekar að þeysast um Ísland.

„Við erum á Þjóðhátíð á föstudagskvöldið, Siglufirði á laugardagskvöldið og svo á Akureyri á sunnudagskvöldið.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×