Lífið

Gullmolar Gumma Ben

Benedikt Bóas skrifar
Guðmundur Benediktsso er með orðheppnari mönnum.
Guðmundur Benediktsso er með orðheppnari mönnum. Vísir/Getty
Guðmundur Benediktsson varð heimsfrægur á Evrópumótinu í knattspyrnu árið 2016. Erlendir fjölmiðlar fjölluðu um að „the crazy commentator from Iceland“ væri kominn aftur, nú á HM, og heyrðist íslensk lýsing hans víða um heim.

BBC spilaði meðal annars lýsingu hans þegar Hannes varði vítið frá sjálfum Messi. Fréttablaðið tók saman nokkur gullkorn frá okkar besta lýsanda í fyrsta leik Íslands á HM.

Gullkorn Gumma



5-4-3-2-1 og þetta er byrjað.

Dauðafæri … Birkir … Birkir … Hefði átt að skora. Þvílíkt færi. Besta færi keppninnar.

17. heimsmeistarakeppni Argentínu. Fyrsti leikurinn okkar.

Raggi lætur Biglia heyra það og hann á það svo sannarlega skilið.

Argentínumenn umkringja Pólverjann. Vildu fá víti á Ragga. Spjaldaðu þá Pólverji. Spjaldaðu þá.

Ég vil ekki sjá að það sé dæmt víti á svona. Þetta er bara horn og ekkert kjaftæði.

Gylfi tók argentínskan tangó inni á teignum.

Ég bið ekki um mikið. Ég bið bara um sigur.

Strákarnir fagna hér marki Alfreðs.Vísir/vilhelm
Gylfi reyndi bara skot þarna. Hann er í fullum rétti til þess. Þetta er Gylfi Þór Sigurðsson. 

Hornspyrna. Við höfum ekkert verið slæmir í þeim að undanförnu eða bara í lífinu. Við elskum gott horn.

Hannes er einkar glæsilegur í þessum rauða búningi. 

Kári og vindurinn eru í vörninni. Það er gott. 

Kreistum fram allt sem við eigum þessar síðustu mínútur.

Hann ætlar að bæta fimm mínútum við! ANDSKOTINN. Afsakið. 

Maradona hefði slegið hann inn. Hann er með vindil eins og einhver vitleysingur. 

Lifum þetta af.

Messi, ekki gera mér þetta. 

Frumraun Íslands er geggjuð frumraun.

Alfreð Finnbogason, beint í markið.Vísir/getty

Markið hjá Alfreð

Jói Berg, Gylfi, vel spilað hjá strákunum okkar í ensku úrvalsdeildinni. Þeir ætla að gera þetta bara tveir. Gylfi með sendinguna inn á teiginn. ALFREÐ. Alfreð féll í teignum. Hörður Björgvin með misheppnað skot. Gylfi fær hann út hægra megin. Gylfi dansar með boltann í teignum. Gylfi með sendingu inn á teiginn. 

ALFREÐ FINNBOGASON

Fyrsti gæinn til að skora á HM. Við erum búin að jafna. Argentína 1, Ísland 1.

Freddi Finnboga er minn maður núna. Já já. 

Danke schön Alfreð. 

Þvílíkur gæi. 

27 mínútur liðnar. Ísland eitt, Argentína eitt. HAHA. 

Við höfum verið undir í fjórar mínútur á HM. Það er allt og sumt.

Hér má sjá Hannes Halldórsson sporðrenna Messi.Vísir/getty

Vítið sem Hannes varði

Góðu fréttirnar eru að Messi skorar ekki úr öllum sínum vítaspyrnum.

Hannes Halldórsson, yfir til þín. Nú þarf að treysta á guð og lukku og Hannes. 

Taktu þetta Hannes.  

Hannes Halldórsson gleypir Messi í einum bita. Þetta er allt eins og þetta á að vera. 

Guð er íslenskur. Hannes líka. 

Ég er til í að horfa á þetta í allan dag og alla nótt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×