Fótbolti

Gullit heitur fyrir hollenska landsliðinu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ruud Gullit var fyrirliði hollenska landsliðsins þegar það varð Evrópumeistari 1988.
Ruud Gullit var fyrirliði hollenska landsliðsins þegar það varð Evrópumeistari 1988. vísir/getty
Ruud Gullit hefur lýst yfir áhuga á að þjálfa hollenska landsliðið í fótbolta.

Hollenska liðið er þjálfaralaust eftir að Daley Blind var sagt upp störfum í gær.

Eftir að hafa lent í 3. sæti á HM 2014 hefur hallað undan fæti hjá Hollandi. Liðið komst ekki á EM 2016 og það þarf mikið að gerast ef það ætlar að komast á HM í Rússlandi á næsta ári.

Gullit, sem er einn besti leikmaður Hollands frá upphafi, segir að það væri mikill heiður að fá að þjálfa landsliðið.

„Ég held að allir myndu vilja þetta starf ef þeim væri boðið það. Það er heiður að vera landsliðsþjálfari. Ég er tilbúinn að hjálpa landsliðinu. Enginn veit hvað gerist. Það eru mörg nöfn í umræðunni,“ sagði Gullit í samtali við beIN Sports.

„Ég hef verið nefndur í þessari umræðu. Við sjáum til hvað gerist,“ bætti Gullit við.

Gullit, sem er 54 ára, hefur ekki þjálfað frá árinu 2011 þegar hann stýrði rússneska liðinu Terek Grozny. Gullit hefur einnig stýrt Chelsea, Newcastle United, Feyenoord og Los Angeles Galaxy.

Hollenska knattspyrnusambandið hefur leitað til Louis van Gaal í þjálfaraleitinni en svo gæti farið að hann fengi sjálfur starfið í þriðja sinn.


Tengdar fréttir

Louis van Gaal til bjargar Hollendingum

Hollendingar eru enn að ná sér eftir að hafa tapað tvisvar fyrir Íslendingum í undankeppni EM 2016 en landsliðið er nú í hættu á að missa af öðru stórmótinu í röð.

Blind rekinn eftir tapið í Búlgaríu

Hollenska knattspyrnusambandið staðfesti rétt í þessu að ákveðið hefði verið að segja upp samningi Danny Blind sem þjálfara hollenska landsliðsins í knattspyrnu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×