Glamour

Guli kjóll Beyonce sem allir eru að tala um

Ritstjórn skrifar
samsett/Glamour/Getty
Beyonce átti internetið í gær þegar hún gaf út plötuna Lemonade með stæl.  Drottningin lét sér ekki nægja að gefa út plötuna heldur var frumsýnd klukkutíma langur þáttur á HBO þar sem meðal annars mátti sjá 12 myndbönd við lög plötunnar. 

Miklar vangaveltur hafa verið um áhrifamikla texta plötunnar en þessi guli kjóll stal athygli okkar. Guli liturinn var góð vísun í titil plötunnar Lemonade en heiðurinn að hönnuninni á hinn norski Peter Dundas fyrir Roberto Cavalli en kjólinn er úr nýjustu línu tískuhússins. 

Sumarlegur kjóll svo ekki sé meira sagt sem Beyonce rokkaði, eins og venjulega. 

Af tískupallinum í París.
Skjáskot

Byrjum þessa viku með drottningunni #glamouriceland #lemonade #beyonce

A video posted by Glamour Iceland (@glamouriceland) on






×