Viðskipti innlent

Guðrún Hafsteinsdóttir nýr varaformaður SA

Atli Ísleifsson skrifar
Guðrún Hafsteinsdóttir er markaðsstjóri Kjöríss og formaður Samtaka iðnaðarins.
Guðrún Hafsteinsdóttir er markaðsstjóri Kjöríss og formaður Samtaka iðnaðarins. Vísir/Vilhelm
Guðrún Hafsteinsdóttir, markaðsstjóri Kjöríss og formaður Samtaka iðnaðarins, var í dag kjörin varaformaður SA fyrir starfsárið 2015 til 2016. Fyrsti fundur nýrrar stjórnar Samtaka atvinnulífsins fór fram í dag.

Í tilkynningu frá samtökunum  segir að jafnframt hafi ný framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífsins verið kosin fyrir starfsárið 2015 til 2016. Jens Garðar Helgason, formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, kemur  nýr inn í framkvæmdastjórnina.

Framkvæmdastjórn SA 2015-2016

Björgólfur Jóhannsson, formaður.

Guðrún Hafsteinsdóttir, varaformaður

Grímur Sæmundsen.

Höskuldur Ólafsson.

Jens Garðar Helgason.

Kolbeinn Árnason.

Margrét Sanders.

Sigsteinn Grétarsson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×