Golf

Guðrún Brá og Rúnar efst eftir tvo hringi

Einar Sigurvinsson skrifar
Guðrún Brá Björgvinsdóttir.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir. vísir/gva
Guðrún Brá Björgvinsdóttir er efst á þremur höggum yfir pari eftir að tveimur hringum er lokið í Hvaleyrarbikarnum. Mótið er hluti að Eimskipsmótaröðinni og fer lokahringurinn fram á morgun. Í 2. sæti eftir tvo hringi er Berglind Björnsdóttir á sjö höggum yfir pari.

Guðrún lék hringinn í dag á tveimur yfir pari. Hún fékk 13 pör, tvo fugla, einn skolla og einn tvöfaldan skolla. Berglind Björnsdóttir lék hringinn á fjórum höggum yfir pari.

Í karlaflokki er Rúnar Arnórsson efstur eftir tvo hringi á þremur höggum undir pari. Henning Darri Þórðarson er í 2. sæti á tveimur undir pari.

Besta golf dagsins lék Ingvar Andri Magnússon en hann fór hringinn á fjórum höggum undir pari með 14 pör og fjóra fugla. Hann er jafn í 3. sæti mótsins ásamt Hlyni Bergssyni á samtals einu höggi yfir pari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×