Viðskipti innlent

Guðný Helga ráðin til Landspítalans

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Guðný Helga Herbertsdóttir hefur verið ráðin deildarstjóri Samskiptadeildar Landspítalans. Hún mun hefja störf um miðjan maí. Þangað til mun hún vinna að áframhaldandi verkefnum hjá Íslandsbanka.

„Þetta er spennandi tækifæri að takast á við það að miðla því frábæra starfi sem á sér stað á Landspítalanum. Til dæmis er hér unninn þvílíkur fjöldi af rannsóknum sem mætti fá meiri athygli. Ég ætla að einbeita mér að þvi að gera það vel,“ segir Guðný Helga en hún segist jafnframt kveðja samstarfsfólkið með söknuði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×