Sport

Guðni Valur setti Íslandsmet í Finnlandi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðni Valur Guðnason.
Guðni Valur Guðnason. Vísir/E.Stefán
ÍR-ingurinn Guðni Valur Guðnason setti nýtt Íslandsmet í kringlukasti innanhúss í gær á alþjóðlegu boðsmóti í frjálsum íþróttum í Botnia í Finnlandi.

Þetta var fyrsta alþjóðlega boðsmótið hjá þessum stórefnilega kastara. Mótið var innanhúss sem er sérstakt fyrir kringlukast en þarna eiga Finnar risaíþróttahús sem er með 400 metra hlaupahring eins og er á útivöllunum.

Guðni Valur tryggði sér annað sætið á mótinu með því að kasta 58,59 metra. Svíinn Daníel Stal, sem Íslendingurinn Vésteinn Hafsteinsson þjálfar, vann mótið.

Pétur Guðmundsson er þjálfari Guðna Vals og þar sækir strákurinn í mikla reynslu og þekkingu hjá einum besta kastara sem við Íslendingar höfum eignast.

Þessi árangur Guðna Vals lofar góðu fyrir sumarið en hann undirbýr sig nú af kappi fyrir Evrópumeistaramótið sem verður í Amsterdam í Júlí en hann hefur náð lágmarki inn á það mót.

Guðni Valur keppti einnig í kúluvarpi sem er aukagrein hjá honum og bætti hann sig með því að kasta 17,17 metra og það dugði í 4 sætið. Kúlan vannst á 18,71 metra kasti og var það Finninn Timo Kööpikka sem fagnaði sigri.

Guðni Valur mun um næstu helgi keppa á öðru innanhúsmóti í kringlukasti í Vaxjö í Svíþjóð og verður gaman að sjá hvort honum takist að færa hið nýja Íslandsmet yfir sextíu metra múrinn.

Þess má geta að innanhúss kringlukast er að færast í aukana og er kastað inni í íþróttahöllum sem eru lagðar gervigrasi með kurli í og notast fyrir fótbolta og annað. Þetta er frábær viðbót fyrir kringlukastara og lengir keppnistímabil þeirra verulega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×