Innlent

Guðni Th: Forseti þarf að standa við orð sín og hafa ekkert að fela

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Guðni ásamt fjölskyldu sinni í Salnum í Kópavogi í dag, eiginkonunni Elizu Reid og börnunum Rut (f.1994), Duncan Tind­i (f. 2007), Don­ald Gunn­ari (f. 2009), Sæþóri Peter (f. 2011) og Eddu Mar­gréti (f. 2013).
Guðni ásamt fjölskyldu sinni í Salnum í Kópavogi í dag, eiginkonunni Elizu Reid og börnunum Rut (f.1994), Duncan Tind­i (f. 2007), Don­ald Gunn­ari (f. 2009), Sæþóri Peter (f. 2011) og Eddu Mar­gréti (f. 2013). Vísir
Guðni Th. Jóhannesson segir að forseti Íslands eigi að vera sameiningartákn þjóðarinnar. Fólkið í landinu þurfi að finna að hann sé ekki í liði með einum og á móti öðrum. Þá þurfi forseti að tryggja að þjóðin eigi alltaf síðasta orðið. Þetta kom fram á framboðsfundi Guðna Th. í Salnum í Kópavogi í dag en fundurinn var í beinni útsendingu á Vísi.

Rithöfundurinn og sagnfræðingurinn Guðni hóf fundinn á að staðfesta framboð sitt til forseta. Hann sagðist bjóða sig fram því hann hefði ákveðnar hugmyndir um embættið sem hann vildi fylgja eftir. Hann hafi fengið fjölda áskorana en lokaákvörðunin hafi verið hans og Elizu, konu hans. 

Hann segir forseta þurfa að vera fastan fyrir þegar á þurfi að halda og standa utan við fylkingar í samfélaginu. Næsti forseti þurfi að læra af því góða sem fyrri forsetar hafa gert og sömuleiðis mistökunum. Forseti sé andlit Íslands í augum heimsins og hann þurfi að sytðja við menningu og listir, atvinnu og viðskiptalíf. Þá eigi hann að vera stoltur en um leið hógvær, kappsamur en án yfirlætis.

Þá minntist Guðni á mikilvægi breytingu í embættinu að forseti synji lögum þegar svo beri undir. Mörg verk sé að vinna en nefndi hann fyrst nýja stjórnarskrá. Þá sé nauðsynlegt að hægt sé að skiptast á skoðunum, ágreiningur sé aðalsmerki þróaðs samfélags. Fólk eigi að geta deilt, jafnvel harkalega, en komist að niðurstöðu.

Guðni benti á að fólk þyrfti að geta treyst á valdhafa, að þeir stæðu við orð sín og hefðu ekkert að fela. Það væru forréttindi að búa á Íslandi. Þá benti hann á að fólk með sjálfstraust væri fólk sem hefði hógværð í hjarta sínu.

Áður en yfir lauk kynnti Guðni konu sína og börn og hafði á orði að hann myndi áfram hjóla með börnin sín í leikskólann og skólann þótt hann næði kjöri sem forseti Íslands.

Hér fyrir neðan má sjá blaðamannafund Guðna í heild sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×