Innlent

Guðni sendir Spánarkonungi samúðarkveðjur fyrir hönd þjóðarinnar

Erna Agnes Sigurgeirsdóttir skrifar
Guðni hvetur til samstöðu.
Guðni hvetur til samstöðu. Vísir/Ernir
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, hefur sent samúðarkveðju til Felipe IV Spánarkonungs fyrir hönd þjóðarinnar.

Samúðarkveðjan kemur í kjölfar hryðjuverkaárásar sem gerð var í miðborg Barcelona í gær. Ekið var inn í hóp fólks og talið er að þrettán hafi látist. Þá hafa fjölmargir slasast.

Í kveðju forsetans hvetur hann til samstöðu og segir að þeir sem vilji verja frelsi og öryggi þurfi að leggjast á eitt til að verja saklaust fólk gegn ódæðum öfgamanna, miskunnarleysi þeirra og mannhatri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×