Innlent

Guðni sefur á ákvörðun sinni fram yfir áramót

Benedikt Bóas Hinriksson skrifar
Guðni Bergsson í banastuði við Laugardalsvöllinn um árið.
Guðni Bergsson í banastuði við Laugardalsvöllinn um árið. Vísir/Hörður Sveinsson
Guðni Bergsson ætlar ekki að ákveða hvort hann fari í formannskjör KSÍ fyrr en í janúar. Guðni sagði í samtali við Fréttablaðið að það væri nægur tími enda ársþing KSÍ ekki fyrr en 11. febrúar.

„Maður er bara að vega og meta. Við sjáum hvað setur,“ sagði Guðni.

Töluverður þrýstingur hefur verið á Guðna í nokkurn tíma að hann bjóði sig fram. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er líklegra en ekki að Guðni tilkynni framboð sitt strax á nýju ári.

Þá hefur nokkur fjöldi skorað á Björn Einarsson, formann Víkings, um að taka slaginn í febrúar. Er hann einnig að vega og meta stöðuna og hefur ekki tekið neina ákvörðun en íhugar málin.

Björn Einarsson, formaður Víkings.
„Þetta eru þreifingar, ekki mjög djúpar pælingar og ég hef ekki tekið neina ákvörðun. En ímynd þessa glæsilega sambands þarf að vera önnur en hún er núna,“ segir Björn.

Björn segir að síminn hafi mikið hringt og ákall um breytingar sé augljóst.

„Ég hef aldrei fundið jafn mikið fyrir því og nú. Ég hef verið lengi í því að reka íþróttafélag sem er dýrmæt reynsla og ég er líka með mikla rekstrarreynslu í fyrirtækjum, bæði hér heima og erlendis.

Það þarf að styrkja ímynd KSÍ og það eru allir sammála því, hvar sem fólk stendur. Ég hef aldrei fundið jafn mikla spennu og togstreitu í þessum málum og nú þannig að ég ætla að meta og spá í þetta.

Ímynd Knattspyrnusambands Íslands hefur beðið töluverða hnekki að undanförnu vegna bónusgreiðslu formannsins, landsliðsnefndarinnar og FIFA tölvuleiksins.vísir/ernir
Ég tel að ég hafi góða reynslu í þetta og ég myndi gera þetta sem hefðbundna stjórnarformennsku. Þannig að sterk skrifstofa með sterkan framkvæmdastjóra sæi um daglegan rekstur. Það er mín sýn.“

Geir Þorsteinsson hefur verið formaður KSÍ síðan 2007 en gustað hefur um starfsemi KSÍ að undanförnu. Bæði eftir að greint var frá því að Geir hefði fengið tveggja mánaða bónus fyrir ótilgreinda vinnu sína í kringum EM í Frakklandi og landsliðsnefnd sambandsins.

Ársþing KSÍ verður haldið í Vestmannaeyjum þann 11. febrúar.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.


Tengdar fréttir

Geir gríðarlega stoltur af sínu starfi hjá KSÍ

Gamli landsliðsfyrirliðinn Guðni Bergsson íhugar nú að fara í framboð til formanns KSÍ. Núverandi formaður, Geir Þorsteinsson, er þó hvergi banginn og er klár í slag við Guðna fari hann fram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×