Körfubolti

Guðni forseti og Kristófer féllust í faðma

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Samsett mynd
Samsett mynd
Guðni Th. Jóhannesson og Kristófer Acox féllust í faðma þegar forseti Íslands heilsaði upp á leikmenn körfuboltalandsliðsins sem leika nú gegn Belgíu í Laugardalshöllinni.

Guðni var einnig heiðursgestur þegar Ísland lagði Sviss í ágúst og óskaði þar öllum leikmönnum Íslands góðs gengis á íslensku nema Kristófer sem fékk kveðju á ensku.

Guðni baðst í kjölfarið afsökunar og í dag föðmuðust þeir innilega fyrir leikinn og ljóst að óvænt og skemmtileg tengsl hafa myndast á milli forsetans og framherjans öfluga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×