Innlent

Guðni búinn að kjósa: "Lýðræðið eigum við að meta framar öðru“

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Guðni var jakkafataklæddur og leið ágætlega að eigin sögn.
Guðni var jakkafataklæddur og leið ágætlega að eigin sögn. Vísir/Anton Brink
Guðni Th. Jóhannesson, sagnfræðingur, kaus í kosningum til embættis forseta Íslands nú í morgun. Hann er sá frambjóðandi sem mælst hefur með hvað mest fylgi í skoðanakönnunum en í síðustu könnun Fréttablaðsins, Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar mældist hann með stuðning 49 prósent kjósenda.

Guðni mætti í sína kjördeild í Valhúsaskóla ásamt fjölskyldu sinni um klukkustund eftir að kjörstaðir opnuðu. Honum leið ágætlega í dag.

„Við njótum þessara réttinda eins og ég segi, við Íslendingar, að fá að kjósa, vonandi mæta sem flestir á kjörstað. Svo tekur fólk niðurstöðunni hver sem hún verður. Það er andi lýðræðisins. Lýðræðið eigum við að meta framar öðru,“ sagði Guðni eftir að hann kaus. Hann er á leið til Frakklands eftir kosningabaráttuna.

Guðni þurfti vitaskuld að reiða fram skilríki eins og aðrir kjósendur.Vísir/Anton
Guðni ásamt fjölskyldu sinni á leið á kjörstað í dag.Vísir/Anton

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×