Fótbolti

Guðmundur Þórarinsson skoraði í sigri Sarpsborg

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Guðmundur í landsliðverkefni
Guðmundur í landsliðverkefni Mynd/Ksí/Hilmar Þór Guðmundsson
Guðmundur Þórarinsson skoraði fyrra mark Sarpsborg 08 sem lagði Sandnes Ulf á útivelli í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Guðmundur skoraði beint úr aukaspyrnu framhjá Hannesi Halldórssyni landsliðsmarkverði sem stóð allan leikinn í marki Sandnes Ulf. Guðmundur skoraði á 26. mínútu en bæði mörkin voru skoruð í fyrri hálfleik.

Eiður Aron Sigurbjörnsson og Hannes Sigurðsson léku allan leikinn fyrir Sandnes Ulf.

Í sænsku úrvalsdeildinni lék Kristinn Steindórsson allan leikinn fyrir Halmstad sem tapaði 2-1 fyrir Mjällby á heimavelli. Kristinn fékk gula spjaldið í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×