Viðskipti innlent

Guðmundur Rafnkell nýr framkvæmdastjóri hjá Samvinnufélagi útgerðarmanna í Neskaupstað

Atli Ísleifsson skrifar
Guðmundur Rafnkell Gíslason hefur að undanförnu gegnt starfi framkvæmdastjóra Sjónaráss.
Guðmundur Rafnkell Gíslason hefur að undanförnu gegnt starfi framkvæmdastjóra Sjónaráss.
Guðmundur Rafnkell Gíslason mun taka við embætti framkvæmdastjóra Samvinnufélags útgerðarmanna í Neskaupstað um miðjan október. Freysteinn Bjarnason mun þá láta af störfum sökum aldurs en hann hefur gegnt starfinu frá árinu 2005.

Guðmundur Rafnkell hefur að undanförnu gegnt starfi framkvæmdastjóra Sjónaráss.

Í tilkynningu frá Samvinnufélagi útgerðarmanna í Neskaupstað kemur fram að Guðmundur Rafnkell sé 45 ára að aldri og búsettur í Neskaupstað ásamt eiginkonu og tveimur dætrum.

„Hann lauk B.ed.-prófi frá Háskólanum á Akureyri árið 1997 og hefur auk þess lokið fjölmörgum námskeiðum á sviði stjórnunar-, öryggis- og mannauðsmála. Guðmundur annaðist rekstur Hótels Egilsbúðar í Neskaupstað á árunum 1997-2005 og var mannauðsstjóri hjá ESS Support Services á Reyðarfirði á árunum 2005-2007. Frá árinu 2008 hefur hann síðan gegnt starfi framkvæmdastjóra Sjónaráss. Guðmundur hefur mikla reynslu af sveitarstjórnarmálum en hann átti sæti í bæjarstjórn Neskaupstaðar og síðar Fjarðabyggðar í 15 ár og var forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar á árunum 2006-2010. Hann sat í stjórn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi á árunum 2004-2010 og Byggðastofnunar á árunum 2011-2014. Frá unga aldri hefur Guðmundur tekið virkan þátt í félagsstörfum og tónlistarlífi.

Samvinnufélag útgerðarmanna í Neskaupstað var stofnað árið 1932 og á sér merka sögu. Nú rekur félagið tvær verslanir, Fjarðasport í Neskaupstað og Veiðifluguna á Reyðarfirði auk þess sem það hefur umboð fyrir Tryggingamiðstöðina og annast verkefni í samstarfi við ÁTVR. Þá hefur félagið sinnt framkvæmdastjórn fyrir Olíusamlag útvegsmanna í Neskaupstað. Samvinnufélagið á eignarhlut í Síldarvinnslunni hf. og ráðstafar drjúgum hluta árlegs arðs af þeirri eign til menningar- og félagsmála innan fjallahrings Norðfjarðar,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×