Íslenski boltinn

Guðmundur Karl: Skrýtið að fara frá Fjölni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Guðmundur Karl er kominn úr gulu og í hvítt.
Guðmundur Karl er kominn úr gulu og í hvítt. Vísir
Guðmundur Karl Guðmundsson, miðjumaður sem spilað hefur með Fjölni síðustu ár, gerði í morgun tveggja ára samning við FH.

Guðmundur Karl er 25 ára og úr Þorlákshöfn en hefur spilað með Fjölni allan sinn meistaraflokksferil.

Þetta er annað árið í röð sem FH-ingar næla sér í  fyrirliða Fjölnis en á sama tíma í fyrra gekk miðvörðurinn Bergsveinn Ólafsson í raðir Íslandsmeistaranna.

Sjá einnig: Guðmundur Karl og Vignir sömdu við FH

„Tilfinningin að spila fyrir annað lið en Fjölni er mjög skrýtin,“ sagði Guðmundur Karl við Tómas Þór Þórðarson, íþróttafréttamann 365, í morgun. „En hún er jafnframt mjög góð. Um leið og FH kom til sögunnar fannst mér þetta mjög spennandi kostur og ég ákvað að stökkva á tækifærið.“

Hann segist hafa nýlega hafnað samningstilboði frá Fjölni og ákveðið að kanna aðra kosti.

„Þá kom FH til sögunnar og hlutirnir gerðust mjög hratt eftir það. Þetta var komið gott hjá Fjölni fannst mér. Síðustu 2-3 tímabil finnst mér að ég hafi átt þó nokkuð inni,“ segir hann.

Guðmundur Karl og Vignir ásamt Jóni Rúnari Halldórssyni, formanni knattspyrnudeildar FH, í morgun.vísir/tom
„FH færir mér góðan og nýja áskorun. Mér finnst að þetta tækifæri geti komið mér aftur á þann stall sem mér finnst að ég eigi heima á.“

Hann segist gera sér fulla grein fyrir því að hann þurfi að berjast fyrir mínútum í jafn sterku liði og FH.

„Ég fæ ekki að spila nema að ég sé nógu góður og er það undir mér komið að sanna mig hér. Ég ætla mér að gera það.“

Hann segist reikna með að fá tækifæri á miðjunni eða úti á kanti, en að einnig komi til greina að spila sem bakvörður. Þá fagni hann því að spila aftur með Bergsveini, sem og Emil Pálssyni sem var lánaður til Fjölnis í hálft tímabil í fyrra.

„Það er geggjað. Ég hef saknað Begga úr klefanum og af æfingum. Líka Emils. Það verður mjög skemmtilegt að hitta þá aftur.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×