Handbolti

Guðmundur Hólmar: Við mætum bara dýrvitlausir á morgun

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Guðmundur Hólmar Helgason.
Guðmundur Hólmar Helgason. Vísir/EPA
Guðmundur Hólmar Helgason var daufur í dálkinn eftir eins marks tap á móti Slóveníu á HM í handbolta í dag.

„Það er gríðarlega svekkjandi að fá ekki neitt út úr þessum leik,“ sagði Guðmundur Hólmar Helgason sem átti fínan leik í vörn íslenska liðsins í dag.

Guðmundur Hólmar leyndi ekki vonbrigðum sínum eftir leikinn enda augljóslega búinn að skilja allt sitt eftir á vellinum.

„Það var hart tekist og mér fannst þetta vera flottur leikur hjá okkur hvað það varðar. Þetta voru kannski ekki frábærar sóknir en fínar varnir og góðar markvörslur,“ sagði Guðmundur Hólmar.

„Þetta datt ekki alveg með okkur og það voru nokkrir skrýtnir dómar þó ég vilji ekki kenna dómurunum um. Það voru samt nokkrir dómar sem duttu ekki með okkur í lokin. Þeir voru líka að fá ódýrar tvær mínútur,“ sagði Guðmundur Hólmar.

„Þetta er svolítið það gamla góða, stöngin út, stöngin inn í svona leikjum. Hver mistök og hvert skot skiptu það miklu máli,“ sagði Guðmundur Hólmar en liðið var samt að gera margt gott.

„Við byggjum ofan á það sem var jákvætt í þessum leik sem var baráttan, vörnin og markvarslan. Sóknin í seinni hálfleik var þokkalega mjúk og við byggjum ofan á það,“ sagði Guðmundur Hólmar en næsti leikur er á móti Túnis strax á morgun

„Við mætum bara dýrvitlausir á morgun. Við erum ekki í kjörstöðu en þetta er engan veginn búið,“ sagði Guðmundur Hólmar.

„Það er töluverð reynsla hjá Túnis og helvítis kíló að tala hjá þeim. Þetta eru alvöru sleggjur og við þurfum gíra okkur inn á það, mæta þeim aðeins framar og skoða þá líka vel í kvöld,“ sagði Guðmundur Hólmar.


Tengdar fréttir

Ólafur: Höfum ekki tíma til að svekkja okkur

„Við vorum ekkert langt frá þessu, vorum inn í leiknum allan tímann og þetta hefði getað dottið báðum megin,“ segir Ólafur Guðmundsson, leikmaður íslenska landsliðsins, eftir svekkkjandi tap gegn Slóvenum á HM í handbolta í Frakklandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×