Handbolti

Guðmundur Hólmar: Megum ekki hræðast neitt

Arnar Björnsson skrifar
Guðmundur Hólmar Helgason gegnir stóru hlutverki í varnarleiknum hjá Íslandi. Líkt og hjá liði sínu í frönsku deildinni spilar hann eingöngu í vörninni.

„Ég held að varnarleikurinn hjá okkur sé alveg á pari. Við vorum búnir að æfa hann ágætlega. Við vissum að úr því að Aron Pálmarsson yrði ekki með að þá yrði sóknarleikurinn okkar aðalhausverkurinn. Þess vegna er mikilvægt að halda vörninni góðri og það er bara planið að gera það áfram.“

Af hverju gengur ykkur svona illa að skora?

„Við erum bara að skjóta í markmanninn. Nei, ég veit það ekki. Við erum kannski svolítið óöryggir. Menn sem hafa ekki verið að taka jafnmikla ábyrgð eru að gera það núna. Það hvílir því mikið á herðum fárra. Það skýrir þetta kannski að einhverju leyti. Nýir menn eru að koma inn og það tekur tíma að smyrja liðið saman.“

Þú óttast ekki framhaldið?

„Nei um leið og förum að hræðast eitthvað erum við orðnir okkar versti óvinur. Við verðum að bera höfuðið hátt og með kassann úti og mæta í hvern einasta leik til að sigra. Sú er staðan orðin núna að við verðum að vinna báða leikina  og það er bara okkar verkefni núna.“

Ekkert vanmat á móti Angóla?

„Nei það er bara ekki í boði.“

Ekki missa af neinu sem gerist á HM í Frakklandi. Vísir er með öflugt fréttateymi á mótinu sem færir ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).


Tengdar fréttir

Gott fyrir egóið að verja víti

Björgvin Páll Gústavsson er búinn að hræða vítaskyttur andstæðinga Íslands á HM enda hefur hann varið meira en helming vítanna sem hann hefur fengið á sig. Hann er sífellt að bæta sig í þessum tölfræðiflokki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×