Handbolti

Guðmundur Guðmundsson: Ég vil helst sleppa við að mæta Íslandi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðmundur Guðmundsson, þjálfari danska landsliðsins.
Guðmundur Guðmundsson, þjálfari danska landsliðsins. Vísir/Getty
Íslenska handboltalandsliðið verður í pottinum í hádeginu í dag þegar dregið verður í riðla í úrslitakeppni Evrópumótsins í handbolta sem fer fram í Póllandi í byrjun næsta árs.

Íslenska landsliðið er í öðrum styrkleikaflokki og getur ekki lent í riðli með Póllandi, Svíþjóð og Ungverjalandi.

Guðmundur Guðmundsson, þjálfari danska landsliðsins, er einn af þremur íslenskum þjálfurum sem stýra liði á mótinu og Politiken spurði Guðmund um óskir hans fyrir dráttinn.

„Ég vil orða þetta þannig: Ég vil helst sleppa við að mæta löndum mínum frá Íslandi sem eru í öðrum styrkleikaflokki. Annars er mér nokkuð sama um hvernig þetta fer," sagði Guðmundur í viðtalinu við Politiken.

Guðmundur hefði væntanlega ekkert á móti því heldur að sleppa við það að mæta Spánverjum og Frökkum áður en kemur að úrslitahelginni.

„Það er nú bara þannig að það er mjög jöfn og öflug lið í Evrópukeppninni. Besta handboltalandslið í heimi kemur frá Evrópu og það er enginn léttur andstæðingur í keppninni. Allir geta spilað vel á sínum góða degi. Ég er því heiðarlegur þegar ég segi að ég eigi enga óskamótherja og engar óskir nema að sleppa við Ísland," sagði Guðmundur.

Danir eru í efsta styrkleikaflokki og munu spila heimaleiki sína í Gdansk nyrst í Póllandi. Danska liðið verður ekki með Frakklandi, Spáni eða Króatíu í riðli en gæti mætt einu þeirra í milliriðlinum.

Þetta verður annað stórmót danska handboltalandsliðsins undir stjórn Guðmundar en liðið endaði í 5. sæti á HM í Katar í janúar sem var slakasti árangur danska liðsins á HM í áratug.

Danska liðið hefur spilað til úrslita á síðustu tveimur Evrópumótum, varð Evrópumeistari á EM í Serbíu 2012 og varði í öðru sæti á heimavelli á EM 2014.


Tengdar fréttir

Aron: Ánægjuleg lending

Eins og fram kom á Vísi fyrr í dag hefur Aron Kristjánsson skrifað undir nýjan samning við HSÍ sem gildir til næstu tveggja ára.

Ísland meðal fastagesta á EM

Íslenska karlalandsliðið í handbolta tryggði sér um helgina sæti á Evrópumótinu í handbolta með flottum tólf marka sigri á Svartfellingum í Höllinni og handboltaliðið kom Íslandi um leið í fámennan hóp handboltarisa álfunnar á þessari öld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×