Golf

Guðmundur Ágúst blandaði sér í toppbaráttuna á Evrópumeistaramóti áhugamanna

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Íslensku kylfingarnir sem tóku þátt.
Íslensku kylfingarnir sem tóku þátt. Mynd/GSÍ
Guðmundur Ágúst Kristjánsson lék framúrskarandi golf á öðrum degi Evrópumeistaramóts áhugamanna sem fer fram í Slóvakíu þessa dagana en hann lauk leik á sjö höggum undir pari. Guðmundur er einu höggi á eftir Jamie Bower sem er efstur eftir tvo daga. Hann komst ásamt félaga sínum úr Golfklúbbi Reykjavíkur, Haraldi Franklín Magnússyni, í gegn um niðurskurðinn.

Guðmundur Ágúst sem lék fanta gott golf á seinni níu holum vallarins í gær þegar hann nældi í tvo erni hann kom inn á 29 höggum, sjö höggum undir pari en hann var á tveimur höggum yfir pari á fyrri holum vallarins í gær.

Hann bætti heldur betur upp fyrir það í dag en hann lauk fyrri níu holum vallarins á tveimur höggum undir pari sem gaf aðeins tóninn fyrir seinni níu holur vallarins. Þar nældi Guðmundur í sex fugla og einn skolla og lauk því leik í dag á sjö höggum undir pari og tólf höggum undir pari í heildina.

Haraldi Franklín tókst ekki að fylgja eftir góðum hring í gær en hann lauk leik á átta höggum undir pari í gær. Haraldur byrjaði hringinn vel og fékk þrjá fugla á fyrstu fimm holum vallarins en lenti í vandræðum á seinni níu holum dagsins. Fékk hann þrjá skolla og einn fugl og lauk því leik á einu höggi undir pari og níu höggum undir pari alls. Er hann ásamt fjórum öðrum í 20. sæti en kemst ásamt Guðmundi í gegn um niðurskurðinn.

Axel Bóasson úr Golfklúbbnum Keili átti í töluverðum með völlinn í dag en Axel lauk leik á þremur höggum undir pari eftir að hafa leikið á fjórum höggum undir pari í gær. Axel fékk skolla á fyrstu holu vallarins en fylgdi því eftir með eina fugli dagsins. Tveir skollar til viðbótar á fyrri níu og einn á seinni níu gerðu það að verkum að hann lauk leik á þremur höggum yfir pari og alls einu höggi undir pari. Féll hann niður úr 20. sæti og í það 85. og missti því af niðurskurðinum.

Gísli Sveinbergsson úr Golfklúbbnum Keili náði örlítið að laga skorið sitt en hann lauk leik í dag á einu höggi undir pari og lauk leik á mótinu á tveimur höggum yfir pari. Andri Þór Björnsson úr Golfklúbb Reykjavíkur og Bjarki Pétursson úr Golfklúbb Borgarness náðu sér ekki á strik en Andri lauk leik á átta höggum yfir pari og Bjarki á tólf höggum yfir pari.


Tengdar fréttir

Þurfa að halda einbeitingunni

Landsliðsþjálfarinn í golfi var ánægður með spilamennsku Haralds, Axels og Guðmundar á fyrsta degi Evrópumeistaramóti áhugamanna í golfi í Slóvakíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×