Fótbolti

Guðmundur áfram hjá Start

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Guðmundur hefur verið í stóru hlutverki hjá Start.
Guðmundur hefur verið í stóru hlutverki hjá Start. Heimasíða Start
Guðmundur Kristjánsson hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við norska úrvalsdeildarliðið IK Start.

Guðmundur, sem er 25 ára gamall, hefur leikið með Start frá 2012, en hann kom til norska liðsins frá Breiðabliki. Guðmundur hefur verið fastamaður í liði Start undanfarin þrjú tímabil, en hann hefur verið notaður í hinum ýmsum stöðum á vellinum.

Guðmundur hefur leikið rúmlega 70 leiki fyrir Start og skorað tíu mörk. Þá hefur hann leikið sex landsleiki fyrir Íslands hönd.

Start situr í 11. sæti í norsku úrvalsdeildinni með 22 stig eftir 20 umferðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×