Körfubolti

Guðmundur áfram hjá Keflavík

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Guðmundur verður áfram í herbúðum Keflavíkur.
Guðmundur verður áfram í herbúðum Keflavíkur. vísir/anton
Körfuboltamaðurinn Guðmundur Jónsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Keflavík. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.

Guðmundur, sem er 32 ára gamall bakvörður, kom til Keflavíkur frá Þór Þorlákshöfn árið 2013 og hefur síðan þá verið í lykilhlutverki hjá liðinu.

Guðmundur, sem er uppalinn hjá Njarðvík, var með 10,0 stig, 4,1 frákast og 2,0 stoðsendingar að meðaltali á tímabilinu.

Keflavík hafnaði í 3. sæti Domino's deildarinnar í vetur og féll svo úr leik fyrir Tindastóli í 8-liða úrslitum úrslitakeppninnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×