Handbolti

Guðmundur: Varnarleikur okkar í síðari hálfleik algjörlega stórkostlegur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðmundur fagnar í leikslok.
Guðmundur fagnar í leikslok. Vísir/Anton
Guðmundur Guðmundsson náði sögulegu afreki í kvöld þegar hann gerði danska landsliðið að Ólympíumeisturum í handbolta karla. Danir eru fyrsta Norðurlandaþjóðin til að ná Ólympíugulli en Svíum tókst aldrei að vinna gull á Ólympíuleikunum með gullaldarlið sitt.

Guðmundur gat að sjálfsögðu ekki verið glaðari þegar Vísir hitti á hann eftir verðlaunaafhendinguna þar sem hann sá sína stráka fá gullið um hálsinn.

„Þetta var rosalegt og bara sögulegt. Þessi leikur hjá okkur var stórkostlegur," sagði Guðmundur Guðmundsson eftir leikinn.

„Að byrja þetta eins og við gerðum, sjö á móti sex. Það sem við vorum að gera með því er að sýna að okkur er alvara hérna og við þorum að taka áhættu. Ef við getum kallað þetta áhættu þá er þetta allaveg útreiknuð áhætta," sagði Guðmundur.

Hann var að stýra liðinu á sínu þriðja stórmóti en kom liðinu nú í fyrsta sinn í leiki um verðlaun eftir að hafa endað í fimmta og sjötta sæti á fyrstu tveimur stórmótunum.

„Ég hef verið trúr mínu þrátt fyrir að ég hafi fengið mikla gagnrýni fyrir varnarleikinn. Ég hef alltaf trúað á leikkerfið, hugmyndafræðina og á þessa taktík. Ég hef unnið áfram með hana og ég hef barist við marga," sagði Guðmundur.

„Ég hef verið gagnrýndur mikið fyrir þetta en ég hef alltaf haldið mínu striki. Það er fyrir mig ákveðinn sigur að sýna fram á þetta," sagði Guðmundur.

„Það var mikilvægt fyrir mig að trúa á mitt og vera samkvæmur sjálfum mér. Að vera ekki alltaf út og suður af því að það eru einhverjir straumar sem vilja fá þitt eitthvert annað," sagði Guðmundur.

Frakkarnir gengu oft á vegg í leiknum og Danir komust mest fimm mörkum yfir í seinni hálfleiknum.

„Þeir komust ekki á flug af því að varnarleikurinn okkar var svo sterkur. Við áttum svo svör sóknarlega en auðvitað koma erfiður kafli. Þeir fengu oft ansi mörg tækifæri til að klára sóknirnar sínar," sagði Guðmundur.

„Varnarleikur okkar í síðari hálfeik er algjörlega stórkostlegur. Hann er lykillinn en við leysum sóknarleikinn líka vel," sagði Guðmundur.


Tengdar fréttir

Guðmundur: Nú er það gull

Guðmundur Guðmundsson er kominn með danska handboltalandsliðið alla leið í úrslitaleikinn á Ólympíuleikunum í Ríó en liðið spilar um gullið við Frakka í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×