Handbolti

Guðmundur: Okkar langbesti leikur á leikunum til þessa

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðmundur Guðmundsson, þjálfari danska landsliðsins.
Guðmundur Guðmundsson, þjálfari danska landsliðsins. Vísir/AFP
Danska handboltalandsliðið er komið í undanúrslit á Ólympíuleikunum í Ríó eftir sannfærandi sjö marka sigur á Slóveníum, 37-30, í átta liða úrslitunum í kvöld.

Guðmundur Guðmundsson, þjálfari danska landsliðsins, er þar með að koma landsliði í leiki um verðlaun á Ólympíuleikum í annað skiptið á síðustu þremur Ólympíuleikum en Ísland vann silfur undir hans stjórn á ÓL í Peking 2008.

Danir voru með undirtökin frá byrjun og þriggja marka forystu í hálfleik, 16-13. Í seinni hálfleik tók þá Dani aðeins sjö mínútur að koma muninum upp í sjö mörk og eftir það var á brattann að sækja hjá slóvenska liðinu.

„Ég er mjög stoltur af því hvernig við settum þetta upp. Taktíkst vorum við mjög vel undirbúnir og vorum búnir að búa okkur undir þeirra sóknarleik. Mér fannst við leysa stærsta hluta leiksins mjög vel," sagði Guðmundur.

„Við fengum ekki markvörslu í byrjun og ég skipti markverðinum út. Það var rétt ákvörðun því Jannick Green kom inn og þá fór þetta að smella," sagði Guðmundur. Niklas Landin varði ekki skot á upphafsmínútum leiksins en Jannick Green kom sterkur inn.

„Þetta var mjög öflugur varnarleikur hjá okkur og þeir náðu varla að skora á okkur í mjög langan tíma. Þeir voru með fimmtán mörk ég veit ekki hvað lengi," sagði Guðmundur.

„Ég er líka mjög ánægður með sóknarleikinn. Við vorum búnir að undirbúa það að við myndum spila þessa vörn sem og þeir byrjuðu með. Við æfðum sóknarleik á móti henni í gær. Svo vorum við líka búnir að fara yfir 6:0 vörnina þeirra. Við leysum það þegar þeir bökkuðu niður í fyrri hálfleik líka," sagði Guðmundur.

„Við vorum búnir að búast við öllu eins og þeir taki tvo úr umferð. Við leystum það en ég þurfti aðeins að hreyfa liðið og taka út menn. Ég tók leikhlé þar og það leystist líka," sagði Guðmundur.

„Það er margt sem þarf að gera og þetta er ekki búið fyrr en það er búið," sagði Guðmundur sem slakaði ekkert á allan leikinn þótt danska liðið væri langt yfir.

„Þetta er langbesti leikurinn okkar á leikunum. Mér fannst við spila frábæran leik. Það eru margir sem eru að skora mörkin og við erum að skora á fjölbreytilegan hátt, úr hornum, af línu, fyrir utan," sagði Guðmundur.

Danir mæta annaðhvort Króatíu eða Pólland í undanúrslitunum á föstudaginn en síðasti leikur átta liða úrslitanna stendur nú yfir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×