Handbolti

Guðmundur: Ofboðslega stoltur, glaður og hrærður

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðmundur Guðmundsson fagnar sigri á Pólverjum í nótt.
Guðmundur Guðmundsson fagnar sigri á Pólverjum í nótt. Vísir/Anton
Guðmundur Guðmundsson stýrði danska landsliðinu í nótt í úrslitaleikinn á Ólympíuleikunum í Ríó en Danir unnu þá Pólverja eftir framlengdan undanúrslitaleik.

Guðmundur fagnaði gríðarlega í leikslok enda mikið afrek að koma danska liðinu í fyrsta sinn í úrslitaleik á Ólympíuleikum. Hann hefur nú komið bæði Íslandi og Danmörk í leik um Ólympíugullið.

„Þetta var stórkostleg skref en þetta var frábær leikur og erfiður. Þetta var þannig að það gat allt gerst í þessu," sagði Guðmundur.

„Við leiðum leikinn til að byrja með en svo komast þeir inn í leikinn og leiða hann," sagði Guðmundur.

„Piotr Wyszomirski lokaði rammanum á tímabili þar sem við brennum alltof mikið af," sagði Guðmundur.

„Við vorum nánast búnir að landa þessu í venjulegum leiktíma en þá skora þeir þetta mark sem er svona eitt skipti af þúsund," sagði Guðmundur.

„Fyrri hálfleikurinn í framlengingunni var kannski lykillinn að þessu. Að vera í undirtölu og skora tvö mörk á móti engu. Það var lykillinn að þessu," sagði Guðmundur.

„Það var stórkostlegt að sjá viljann í liðinu því þetta er enginn smá leikur í gangi og mikið í húfi," sagði Guðmundur.  

Sjá einnig:Guðmundur spilar aftur við Frakka um gullið | Danir unnu í framlengingu

„Við erum búnir að brenna okkur þannig lagað eða lenda í erfiðum stöðum bæði í Katar og í Póllandi. Það hefur bara þjappað mönnum saman að láta ekki svona gerast aftur," sagði Guðmundur. Guðmundur fagnaði gríðarlega í leikslok.

„Þetta er ólýsanleg tilfinning. Maður er bara svo ofboðslega stoltur, glaður og hrærður. Það eru þannig tilfinnigar. Að ná þessu aftur með landslið er meiriháttar. Ég er gríðarlega stoltur af því," sagði Guðmundur sem fór með Ísland í úrslit á ÓL í Peking 2008.

Þetta er þriðja stórmót hans með danska landsliðið en í fyrsta sinn sem hann kemur liðinu í leiki um verðlaun.

„Það hefur oft verið á brattann að sækja fyrir mig þarna en ég hef haldið einbeitingu minni og einbeitt mér að verkefninu alla tíð. Að vinna faglega og vel fyrir þetta lið. Þannig hef ég gert þetta," sagði Guðmundur.   




Fleiri fréttir

Sjá meira


×