Handbolti

Guðmundur: Nú er það gull

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðmundur Guðmundsson og Danir fagna hér sigri í undanúrslitaleiknum.
Guðmundur Guðmundsson og Danir fagna hér sigri í undanúrslitaleiknum. Vísir/Anton
Guðmundur Guðmundsson er kominn með danska handboltalandsliðið alla leið í úrslitaleikinn á Ólympíuleikunum í Ríó en liðið spilar um gullið við Frakka í dag.

„Það er eitthvað með þessa Frakka. Sagan endurtekur sig en nú skulum við vona að við komum inn í þennan leik og viljum endilega verða Ólympíumeistarar," sagði Guðmundur.

Danska landsliðið hefur aldrei komist í úrslit á Ólympíuleikum og besti árangur liðsins fyrir þessa leika var fjórða sætið á Ólympíuleikunum í Los Angeles 1984.

Danir hafa tapað þremur úrslitaleikjum á HM (2011, 2013) eða EM (2014) á undanförnum árum en þetta er sá fyrsti í þjálfaratíð Guðmundar.

„Nú þurfum við að þjappa okkur saman og læra af þessum úrslitaleikjum og koma grimmir inn í þennan leik. Það er það sem gildir núna," sagði Guðmundur.

Frakkar hafa unnið Ólympíugullið á síðustu tveimur leikjum, fyrst í Peking 2008 og svo í London 2012. Þeir eru einnig ríkjandi heimsmeistarar.

„Þetta franska lið er alls ekki ósigrandi. Þeir eru búnir að sýna það. Þeir voru næstum því búnir að tapa þessu niður á móti Þjóðverjum og í nokkrum leikjum öðrum. Töpuðu síðan á móti Króötum," sagði Guðmundur.

Frakkar unnu Katar og Evrópumeistara Frakka á leið sinni í úrslit en Danir enduðu Ólympíudrauminn hjá Slóvenum og Pólverjum. Liðin mættust í riðlakeppninni þar sem Frakkar unnu 33-30 en þetta var leikur í síðustu umferðinni.

„Við vorum fjórum mörkum yfir í seinni hálfleik á móti þeim en spiluðum illa út úr okkar. Það er allt mögulegt," sagði Guðmundur.

Hann er á því að það komi danska liðinu vel að hafa spilað við Frakka áður á þessum Ólympíuleikum.

„Mér finnst það hjálpa okkur. Ég held að við höfum grætt á því," sagði Guðmundur.

Guðmundur er nú kominn með lið í úrslitaleik á Ólympíuleikum í annað skiptið en hann fór með íslenska landsliðið í gullleikinn í Peking 2008. Þá tapaði Ísland einmitt á móti Frökkum og varð að sætta sig við silfrið.

„Nú er það gull," sagði Guðmundur staðráðinn í því að vinna úrslitaleikinn á móti Frökkum.


Tengdar fréttir

Fáum við íslenskan úrslitaleik?

Dagur Sigurðsson og Guðmundur Guðmundsson eru komnir með lið sín í undanúrslit á Ólympíuleikunum í Ríó og vinni Þýskaland og Danmörk leiki sína í dag mætast þeir í úrslitaleiknum á sunnudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×