Guðmundur: Austurríkismenn hafa reynst okkur erfiðir Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. júní 2011 16:00 Strákarnir fögnuðu sigri á Austurríkismönnum á HM í Svíþjóð í janúar. Mynd/Valli „
Við getum ekki leyft okkur að spila með sama hætti gegn Austurríkismönnum og við gerðum á miðvikudaginn gegn Lettum," sagði Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari á blaðamannafundi í Safamýrinni í dag. Fundurinn fór fram strax eftir æfingu íslenska landsliðsins. „Austurríkismenn hafa reynst okkur erfiðir í síðustu þremur leikjum og á Heimsmeistaramótinu í Svíþjóð tók það okkur tæplega fimmtíu mínútur að brjóta þá á bak aftur," sagði Guðmundur. „Varnarlega eru þeir mjög sterkir og markvarsla liðsins er hæsta gæðaflokki sem síðan leiðir af sér góð hraðaupphlaup. Þeir eru með frábæran leikstjórnanda í Viktor Szilagyi og skyttur liðsins eru öflugar. Þá eru hornamenn liðsins í fremstu röð í heiminum," sagði Guðmundur. „Það er einnig mikilvægt að íslenska liðið fái stuðning áhorfenda í Höllinni því þetta er einfaldlega úrslitaleikur. Þeim nægir eitt stig en við verðum að vinna leikinn," sagði Guðmundur. Björgvin Páll Gústavsson, markvörður íslenska liðsins, sagði það rétt að í svona leikjum réðust úrslit ofar en ekki á vörn og markvörslu. „Ég er í fínu standi og ég vona að við fáum þann stuðning sem við þurfum á að halda. Það er ekkert skemmtilegra en að vinna svona leiki fyrir fram troðfulla höll," sagði Björgvin Páll.
Handbolti Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Fótbolti Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Baulað á Trump í New York Körfubolti Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Íslenski boltinn Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Íslenski boltinn „Hlakka mikið til að ná fleiri áföngum fyrir Ísland“ Golf Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Fótbolti Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Körfubolti Eins og að fá spark frá hesti beint í brjóstkassann Fótbolti Fleiri fréttir Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sjá meira