Íslenski boltinn

Guðmunda samdi við Stjörnuna

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Guðmunda í leik gegn Stjörnunni.
Guðmunda í leik gegn Stjörnunni. vísir/andri
Stjarnan fékk mikinn og góðan liðsstyrk í dag er framherjinn Guðmunda Brynja Óladóttir gekk í raðir félagsins.

Guðmunda er búin að skrifa undir þriggja ára samning við Íslandsmeistarana en hún kemur til félagsins frá Selfossi þar sem hún hefur verið í lykilhlutverki síðustu ár.

Selfoss féll aftur á móti úr Pepsi-deild kvenna í sumar og því kemur fáum á óvart að Guðmunda hafi ákveðið að söðla um.

Guðmunda náði aðeins að spila sjö leiki fyrir Selfoss í Pepsi-deildinni í sumar vegna meiðsla og munaði um minna fyrir lið Selfoss.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×