Íslenski boltinn

Guðmunda: Ferð ekki í bikarúrslitaleik til að tapa

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Annað hvort Guðmunda Brynja eða Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, fyrirliði Stjörnunnar, lyftir bikarnum á morgun.
Annað hvort Guðmunda Brynja eða Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, fyrirliði Stjörnunnar, lyftir bikarnum á morgun. vísir/anton
Guðmunda Brynja Óladóttir, fyrirliði Selfoss, segir að Selfyssingar séu reynslunni ríkari eftir bikarúrslitaleikinn í fyrra sem var sá fyrsti í sögu félagsins.

„Já, algjörlega. Við vorum í fyrsta sinn í bikarúrslitum í fyrra og það var reynsla fyrir okkur. Nú vita stelpurnar út á hvað þetta gengur, hvað þetta er stórt og flott og mikil umgjörð utan um þennan leik. Ég held að við séum tilbúnar í þetta,“ sagði Guðmunda í samtali við Vísi um bikarúrslitaleik Selfoss og Stjörnunnar í dag.

Sjá einnig: Fyrirliðinn áfram á Selfossi

Stjarnan vann leik liðanna í fyrra 4-0 en Selfossliðið er sterkara í ár og býr að því að hafa unnið Garðabæjarliðið í ár. En hvaða þýðingu hefur sigur Selfoss á Stjörnunni í fyrra leik liðanna í Pepsi-deildinni fyrir leikinn í dag?

„Það gefur okkur þvílíkt sjálfstraust. Við höfðum ekki unnið þær áður og þetta gefur okkur mikið. Við vitum að við getum unnið þær,“ sagði Guðmunda sem er markahæsti leikmaður Selfoss í sumar með 12 mörk. Hún segir að Selfyssingar þurfi fyrst og síðast að einbeita sér að sjálfum sér í undirbúningnum fyrir leikinn í dag.

„Við þurfum að einbeita okkur að okkar leik og okkar styrkleikum, þá náum við að loka á þeirra styrkleika og nýta okkar. Við einbeitum okkur aðallega að sjálfum okkur og látum Gunna (Gunnar Rafn Borgþórsson, þjálfara Selfoss) um að hafa áhyggjur af þeim.“

Selfoss er nýtt afl í íslenskum kvennafótbolta en liðið er aðeins á sínu fjórða ári í efstu deild. En er pressa á Selfosskonum að vinna fyrsta stóra titilinn í sögu félagsins?

„Já og nei. Það var svolítið ætlast til þess að við færum í bikarúrslitin aftur og það var líka eitt af okkar útgefnu markmiðum að fara aftur í þennan leik. Þú ferð ekki í bikarúrslitaleik til að tapa og það er kannski smá pressa á okkur að vinna hann.

„En það er meiri pressa á þeim. Pressan að vinna leikinn kemur aðallega frá okkur sjálfum,“ sagði Guðmunda sem á von á Selfyssingar og Sunnlendingar allir fjölmenni á leikinn í dag.

„Já, algjörlega. Það á að slá upp mikilli bæjarhátíð. Sunnlendingar sameinast á Selfossi og fara svo saman á leikinn,“ sagði Guðmunda að lokum.

Leikur Selfoss og Stjörnunnar hefst klukkan 16:00 og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Einnig verður hægt að fylgjast með leiknum í beinni textalýsingu á Vísi.


Tengdar fréttir

Fyrirliðinn áfram á Selfossi

Guðmunda Brynja Óladóttir, fyrirliði Selfoss, hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við félagið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×