Innlent

Guðlaugur Þór um tilskipun Trump: „Munum standa með okkar þegnum“

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Guðlaugur Þór Þórðarson og Donald Trump.
Guðlaugur Þór Þórðarson og Donald Trump. Vísir/Ernir/EPA
Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, segir að baráttan gegn hryðjuverkum verði erfiðari og að það geri illt verra ef fólki er mismunað eftir trúarbrögðum eða kynþætti. Þetta kemur fram í Facebook færslu ráðherrans.

Með þessum orðum er ljóst að Guðlaugur er að gagnrýna tilskipun Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, sem undirrituð var í gær og kveður á um að einstaklingar frá Írak, Íran, Libíu, Sómalíu, Súdan, Sýrlandi og Jemen hljóti ekki inngöngu í Bandaríkin næstu þrjá mánuði, jafnvel þó þeir hafi svokallað græna kort, sem er ótímabundið dvalar- og landvistarleyfi.

Ríkisstjórinn í Washington-ríki á vesturströnd Bandaríkjanna hefur gagnrýnt ákvörðunina harðlega eins og sjá má í myndbandinu að neðan.

Í samtali við Vísi segir Guðlaugur að tilefni færslunnar séu áhyggjur af umræddri fyrirskipun Trump.

„Það er forgangsmál að berjast gegn hryðjuverkum, en mismunun byggð á trúarbrögðum og kynþáttum hjálpar ekki málstaðnum.“

Guðlaugur bendir á að í þeim löndum sem tekin hafi verið fyrir í fyrirskipun Trumps, búi mismunandi fólk með mismunandi trúarbrögð. Það veki sérstaka athygli að á þessum lista séu ekki ríki sem sýnt hefur verið fram á að flestir hryðjuverkamenn komi frá, líkt og Sádí-Arabía. Því sé um augljósa mismunun að ræða.

Guðlaugur segir jafnframt að fyrirskipunin brjóti í bága við íslensk gildi.

„Við munum standa fast á þeim gildum sem við stöndum fyrir og munum halda því áfram," segir Guðlaugur sem segir að sér finnist sjálfsagt að fjalla um málið í utanríkismálanefnd eins og óskað hefur verið eftir.

Að sögn Guðlaugs voru stjórnarskiptin vestra nýlega rædd á fundum hans með utanríkisráðherrum norðurlandanna. Hann segir að ráðherrarnir bíði þess að stefna bandarískra stjórnvalda skýrist í mörgum málaflokkum. Það sé þó gott að afstaða Bandaríkjamanna til NATO sé óbreytt í grundvallaratriðum.

Þá hefur Guðlaugur einnig áhyggjur af fyrirskipunum Trump er varða fóstureyðingar, en nýlega skrifaði forsetinn undir tilskipun sem kemur í veg fyrir að fjármagn frá alríkisstjórninni þar í landi fari til alþjóðlegra hópa, sem framkvæma eða styðja með einhverjum hætti fóstureyðingar.

Munum standa með okkar þegnum

Breska forsætisráðuneytið hefur gefið út að bresk stjórnvöld muni standa með breskum ríkisborgurum sem kunna að verða fyrir áhrifum vegna bannsins, en sem dæmi má nefna að þingmaður Íhaldsflokksins, Nadhim Zahawi sem upprunalega er frá Írak, má ekki ferðast til Bandaríkjanna næstu þrjá mánuði, á meðan fyrirskipun Trump er í gildi.

Guðlaugur segir að íslenskir ríkisborgarar, sem upprunir eru frá einhverjum þessara landa, muni hljóta fullan stuðning íslensku ríkisstjórnarinnar komi til þess að þeim verði meinuð innganga í Bandaríkin á grundvelli uppruna síns.

„Ef eitthvað slíkt kemur upp, þá munum við standa með okkar þegnum, það er alveg klippt og skorið,“ en að sögn Guðlaugs hafa slík mál ekki komið upp enn sem komið er.


Tengdar fréttir

Óska eftir fundi í utanríkismálanefnd Alþingis vegna Trump

Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Steinunn Þóra Árnadóttir, þingkonur Vinstri grænna í utanríkismálanefnd Alþingis hafa óskað eftir því að nefndin fundi hið fyrsta með utanríkisráðherra til að ræða viðbrögð við fyrirskipun Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, um að banna fólki frá sjö löndum að ferðast til Bandaríkjanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×