Handbolti

Guðjón Valur tók HM-leikjametið af Ólafi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Enginn hefur spilað fleiri leiki á HM en Guðjón Valur Sigurðsson fyrir Ísland.
Enginn hefur spilað fleiri leiki á HM en Guðjón Valur Sigurðsson fyrir Ísland. vísir/epa
Guðjón Valur Sigurðsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í handbolta, er orðinn leikjahæsti maður landsliðsins frá upphafi á HM en metinu náði hann í kvöld á móti Angóla á HM 2017 í Frakklandi.

Þetta er 55. leikur Guðjóns Vals á HM frá því landsliðsferill hans hófst. Fyrsta heimsmeistaramótið sem hann tók þátt í var einmitt í Frakklandi árið 2001.

Metið átti fyrrverandi fyrirliði landsliðsins og einn besti handboltamaður sögunnar, Ólafur Stefánsson, en hann spilaði 54 leiki á HM á sínum glæsta ferli. Ólafur spilaði sinn síðasta HM-leik í Svíþjóð árið 2011.

Guðjón Valur er á sínu 20. stórmóti frá upphafi en hann er markahæsti leikmaður landsliðsins frá upphafi. Það met tók hann einnig af Ólafi Stefánssyni.

Hornamaðurinn magnaði hefur spilað flesta HM-leiki á móti Rússlandi, Spáni og Frakklandi eða fjóra á móti hverri þjóð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×