Handbolti

Guðjón Valur sterkur í auðveldum sigri Löwen

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Guðjón Valur var sterkur í kvöld.
Guðjón Valur var sterkur í kvöld. vísir/getty
Íslendingaliðið Rhein-Neckar Löwen vann auðveldan útisigur, 27-35, gegn Stuttgart í kvöld.

Með sigrinum komst Löwen upp að hlið Flensburg og Füchse Berlin í öðru sæti deildarinnar. Þau eru tveim stigum á eftir toppliði Kiel.

Alexander Petersson og Guðjón Valur Sigurðsson léku báður með Löwen í kvöld. Guðjón Valur skoraði sex mörk og Alexander þrjú.

Í franska boltanum skoraði Snorri Steinn Guðjónsson fimm mörk fyrir Nimes gegn Nantes í kvöld en það dugði ekki til því liðið tapaði, 31-34. Nimes er í fjórða sæti frönsku deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×